Nokkuð hefur verið um skrautleg fiðrildi á flögri á sunnanverðu landinu í sumar. Erling Ólafsson skordýrafræðingur heldur úti Facebook-síðunni Heimur smádýranna þar sem hann birtir reglulega skemmtilegan fróðleik.
Í nýrri færslu segir hann að margir hafi haft samband vegna umræddra fiðrilda sem einkum hafa sést á sunnanverðu landinu og ef til vill víðar. Um er að ræða svokölluð aðmírálsfiðrildi sem berast til landsins á hverju sumri, stundum fáein en stundum í umtalsverðum mæli.
„Að þessu sinni var fjöldinn umtalsverður,“ segir Erling sem bætir við að einnig hafi sést þistilfiðrildi en miklum mun færri.
„Fiðrildin hafa borist með hlýjum loftstraumi frá Suður-Evrópu. Á sama tíma komu til landsins landsvölur og bæjasvölur. Fiðrildi og svölur koma gjarnan samtímis,“ segir Erling sem birtir mynd með færslunni af aðmírálsfiðrildi. Myndin var tekin í október í fyrra í trjálundinum Sólbrekku við Seltjörn í Reykjanesbæ. Erling segir að þá hafi verið töluvert af þessum fögru fiðrildum á ferðinni.
Í umfjöllun Vísindavefjarins kemur fram að náttúrulegt útbreiðslusvæði aðmírálsfiðrilda sé í Suður-Evrópu, Norður-Afríku, á Mið-Atlantshafseyjum og í Norður-Ameríku.
„Aðalútbreiðslusvæði þeirra er í Norður-Afríku og þaðan fara þau í göngum norður til Evrópu. Þau geta tímgast á Bretlandseyjum og myndað sumarkynslóð, en lifa ekki af veturinn. Á Íslandi eru aðmírálsfiðrildi aðeins flækingar, fjölga sér ekki og lifa að sjálfsögðu veturinn ekki af, frekar en annars staðar í N-Evrópu.“
AÐMÍRÁLAR hafa haft samband vegna skrautlegra fiðrilda á flögri undanfarið á sunnanverðu landinu og ef til vill víðar....
Posted by Heimur smádýranna on Miðvikudagur, 10. júní 2020