„Það er okkar sem fullorðin erum að búa unga fólkinu okkar öruggt og heilbrigt samfélag, ekki satt,“ segir Guðrún Ágústa Ágústsdóttir, uppeldis-, fíkni- og fjölskyldufræðingur.
Guðrún, sem starfar í Foreldrahúsi, skrifar athyglisverða grein á vef Vísis þar sem hún segir meðal annars frá notkun ungmenna á nikótíni, orkudrykkjum og jafnvel fíkniefnum.
Mikið hefur verið fjallað um koffínneyslu ungmenna, en koffín er örvandi efni sem finnst meðal annars í orkudrykkjum og kaffi.
„Börn og ungmenni eru almennt viðkvæmari fyrir koffíni en fullorðnir og er neysla koffíns því sérstaklega óæskileg fyrir þann hóp,“ segir hún og vísar í nýlegar niðurstöður könnunar sem leiddi í ljós að dagleg neysla orkudrykkja eykst með hækkandi aldri. Var hlutfall framhaldsskólanema sem neytti orkudrykkja daglega eða oftar árið 2018 55% prósent en var árið 2016 22%.
Hún vindur sér því næst að nikótínnotkuninni en eins og kunnugt er hóf vape-ið innreið sína á íslenskan markað fyrir nokkrum árum. Nýlega hafa nikótínpúðar sem ætlaðir eru undir vör náð mikilli útbreiðslu á kostnað íslenska neftóbaksins. Guðrúnu var brugðið þegar hún fór í vettvangsathugun í sérverslun á höfuðborgarsvæðinu sem selur nikótínvörur.
„Í hillum verslunarinnar sem minnti helst á nammiland blasti við í það minnsta 40 tegundir af nikótínpúðum í dósum, allar mjög flottar á lit með mismunandi styrkleika og bragðtegundir. Þá kom að vape vökva deildinni en þar voru vel yfir 100 tegundir af olíum, þykkum, þunnum, mis sterkar af nikótíni, allskonar bragðtegundir og svo voru hin ýmsu áhöld til neyslu á varningnum.“
Það sem Guðrún segir að sé einna óhugnanlegast er sú staðreynd að meðfram þessu æði ungmenna í vape tískubylgjunni fylgir einnig að hægt er að kaupa ólögleg vímuefni til að reykja.
„Í þessar græjur er einnig hægt að kaupa Kannabis olíu sem oftast er reyndar K2 eða Spice sem er efnablanda en ekki planta, þetta efni eru sum ungmenni að reykja í vape græjunum sínum. Mörg af þeim ungmennum sem til okkar í Foreldrahús koma eru í miklum vanlíðan vegna þessara efna, þau byrja daginn á því að fá sér nikótín í vörina skola því niður með 500ml af orkudrykk og fá sér svo nokkra smóka af vape-inu sínu sem að í sumum tilvikum inniheldur K2. En Spice (K2) fíkniefni finnst ekki á þvagprufum og það vita ungmennin en ekki endilega foreldrarnir.“
Hún segir að lítið mál sé fyrir ólögráða ungmenni að verða sér út um allskonar óþverra með einu símtali.
„Á svæðið mætir um hæl skutlari sem er óbreyttur borgari á bifreið sem er með skottið fullt af ýmsum varningi sem bannaður er ólögráða börnum. Þar er hægt að fá keyptan landa á góðum prís og annað áfengi. Hinar ýmsu tegundir af nikótín púðum, vape vökva, spice-k2 vökva og allt þar á milli. Ungmenni og börn eru ekki spurð um aldur við þessi viðskipti og virðast þau geta fengið varning keyptan án vandræða.“
Guðrún segir að þrátt fyrir mikla umræðu um þessi málefni hafi litlar breytingar orðið. Spyr hún hvort ekki þurfi að róttækari breytingar en einungis breytingar á löggjöf vegna tóbaksvarna.
„Verðum við ekki að fara að láta verkin tala núna, gerum minna af því að búa til nefndir en brettum upp ermar. Það er okkar sem fullorðin erum að búa unga fólkinu okkar öruggt og heilbrigt samfélag ekki satt? Langtíma afleiðingar geta orðið mjög alvarlegar lýðheilsu ungmenna.“