Fjörugar umræður fara fram í íbúahópi Grafarvogsbúa á Facebook vegna lausagöngu katta í hverfinu.
Kona ein í Víkurhverfi, Guðrún að nafni, setti inn færslu í morgun þar sem hún lýsti því sem fyrir augu bar skammt frá heimili hennar í morgun.
„Sælir kattaeigendur, ég er í hálfgerðu sjokki eftir að hafa séð til kattar sem var að reyna að murka lífið úr spóa hér fyrir aftan hús hjá mér. Það hefur verið mér mikið gleðiefni að eitt spóapar hefur verið hérna á þessum slóðum ár eftir ár og það hefur bæði verið gaman að fylgjast með þeim og heyra yndislegu hljóðin sem þau gefa frá sér,“ segir hún meðal annars í færslunni og biðlar til þeirra sem eiga ketti sem ganga lausir að hafa stórar bjöllur á þeim.
Margir taka undir þetta innlegg og bæta því við að kisum eigi að halda inni á varptíma fugla. Einn íbúi bendir þó á að bjöllurnar geri takmarkað gagn. „Horfði á nágrannaköttinn minn nánast drepa fugl hér fyrir utan, sá var með trúðakraga með bjöllum. Ég bjargaði fuglinum sem drapst svo sólarhring seinna. Þá á að halda kisum inni,“ segir viðkomandi.
Svo eru þeir sem koma köttunum til varnar og benda á þeir séu rándýr sem veiði sér til matar. Svona sé einfaldlega gangur lífsins. Fuglavinir gefa ekki mikið fyrir þau rök og segir einn til dæmis: „Inniber það rétt minn til að farga téðum ketti, "circle of life" þvílík steypa.“ Hann bætir svo við: „Fæ mér Husky næst, einn sem hatar ketti og þá getur þú sungið "Who let the dogs out" sem er líka frábært lag.“
Það eru fleiri en íbúar Grafarvogs sem ræða sín á milli um lausagöngu katta. Íbúi á Seltjarnarnesi birti mynd í Facebook-hópi íbúa þar sem sjá mátti kött gæða sér á dauðum fugli á miðri götu. „Best væri ef allir katta eigendur myndu hafa kettina sína með bjöllu um hálsinn. Horfði á þennan tæta fuglinn í sig í gær,“ segir viðkomandi.
Ýmsir vísa í samþykktir sveitarfélaga, Seltjarnarness þar á meðal, um kattahald. Þar er kveðið á um að eigendum og umráðamönnum katta beri að taka tillit til fuglalífs á varptíma.