Guðrún vill klára söluna á Íslandsbanka sem fyrst

Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, vill klára söluna á Íslandsbanka sem fyrst. Hún segir það ekki hafa komið á óvart að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hafi fengið verðlaun fyrir viðskipti ársins þegar hann seldi 35% hlut ríkisins í bankanum fyrr á þessu ári.

„Hrakspár úr röðum stjórnarandstæðinga um að nú myndi gömul saga endurtaka sig reyndust á sandi reistar,“ segir Guðrún í grein sem hún birtir á vef Vísis.

Almenningi var gefinn kostur á að taka þátt í útboðinu og varð niðurstaðan dreift eignarhald eins og að var stefnt og 55 milljarðar í ríkissjóð.

„Það munar um minna fyrir almannahag þegar ríkissjóður hefur þurft að verja hundruð milljarða króna í björgunaraðgerðir til varnar fólki og fyrirtækjum vegna heimsfaraldursins. Salan á bankanum lækkar þann reikning og léttir byrðar skattgreiðenda þegar fram í sækir.“

Guðrún bendir á að samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs, sem nú liggur fyrir þinginu, sé ráðgert að eftirstandandi hlutur ríkisins verði að fullu seldur innan tveggja ára.

„Því spyr ég þing og þjóð, er eftir einhverju að bíða? Sá hlutur sem nú er í höndum ríkisins er í dag jafn mikils virði og allur hlutur ríkisins var fyrir söluna. Þetta hefur gerst vegna þess að markaðsöflin hafa verið leyst úr læðingi og aukið verðmæti bankans.“

Guðrún bendir þeim á sem hafa áhyggjur vegna bankahrunsins 2008 og telja að banki í einkaeigu sé ávísun á ófarir, að allt regluverk um fjármálastarfsemi hafi gjörbreyst síðan þá og verið treyst. Ekki bara hér á landi heldur um allan hinn vestræna heim.

„Stjórnvöld og fjármálageirinn lærðu af biturri reynslu. Það sem gerðist þá getur ekki endurtekið sig nú með sams konar hætti.“

Hún bendir þó að bankarekstur sé í eðli sínu áhætturekstur og geti sveiflast til.

„Geirinn þarf að vera kvikur til að bregðast við kalli samtímans og nýjustu tækniframförum. Það er því óeðlilegt og hamlandi að ríkið sé með stóran hluta bankakerfisins á sinni hendi. Það gefur stjórnmálamönnum völd sem þeim ber ekki að fara með og slíkt fyrirkomulag minnkar hagræði í rekstri og dregur úr ávinningi viðskiptavina.“

Guðrún segir að lokum að margvísleg innviðauppbygging og niðurgreiðsla Covid-hallans sé meðal helstu verkefna ríkissjóðs. Okkur beri að sinna þeim verkefnum sem varða almannahag og láta markaðinn um hitt. „Klárum söluna á Íslandsbanka, landi og lýð til heilla.“