„Ég hef verið hugsi yfir því á hvaða vegferð minn gamli vinnustaður er þegar kemur að málefnum fólks sem sækir um alþjóðlega vernd hér á landi en þetta er málaflokkur sem ég hef fjallað mikið um á mbl.is og í Morgunblaðinu,“ skrifar Guðrún Hálfdánardóttir, blaðamaður á RÚV og fyrrum blaðamaður Morgunblaðsins í 25 ár.
„Síðast fjallaði ég um þetta í fjórum innslögum á Morgunvaktinni á Rás 1 29. ágúst til 2. september en þau má finna á spilara Rúv undir heitinu Heimildavarp Rúv. Í leiðara Morgunblaðsins í dag eru þetta lokaorðin: „Morgunblaðið hefur eftir heimildum, sem það telur áreiðanlegar, að allmargir flóttamenn sem sagðir eru frá Venesúela, í fölsuðum vegabréfum, hvort sem embættismenn í Venesúela eða annars staðar standi að þeim, komi hingað frá Sýrlandi og ekki sé talið að þeir hafi haft nokkra viðkomu í Venesúela,“ skrifar Guðrún.
„Íslensk yfirvöld af ýmsu tagi láti yfir sig ganga að hafa sig að fíflum. Hversu lengi getur þessi aumingjagangur staðist?" Ég verð að viðurkenna að mig langaði bara til að skæla þegar ég las þetta í morgun. Er þetta virðingin fyrir fólki sem er að flýja óbærilegar aðstæður? Til að mynda í Sýrlandi þar sem geisað hefur borgarastyrjöld í 11 ár. Kannski telur leiðarahöfundur Morgunblaðsins að Sýrland sé öruggt land og því þurfi fólk þaðan að kaupa sér fölsuð vegabréf frá Venesúela. Það getur vel verið að hingað sé að koma fólk frá Venesúela sem á rætur í Sýrlandi, svona eins og margir Íslendingar eiga rætur annars staðar en á Íslandi,“ skrifar hún að lokum.
Fjórar fréttir Morgunblaðsins um útlendingamál í gærmorgun voru til umræðu í gær en skjáskot af þeim má finna hér að neðan.
Þjóðernishægrið læðist hægt og bítandi inn í meginstrauminn. https://t.co/dQekZlE5AH
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) October 11, 2022