Guðrún ragnarsdóttir og guðmundur arnar: hvað gerði thomas cook rangt?

Þau Guðrún Ragnarsdóttir, ráðgjafi hjá Strategíu og Guðmundur Arnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Markaðsakademíunnar, verða saman í „settinu“ hjá Jóni G. í kvöld. Þarfir viðskiptavina breytast svo hratt að flest fyrirtæki þurfa að vera á tánum alla daga og innleiða stefnu sína af eldmóði ætli þau ekki að missa viðskiptavini sína til keppinautanna. Sprotafyrirtæki eru kvik og koma auga á alls kyns glufur og holur á markaðnum. Þau fara meðal annars yfir það hvað fór úrskeiðis í stefnu hinnar 178 ára bresku ferðaskrifstofu Thomas Cook sem varð gjaldþrota um helgina.