Guðrún Margot Ólafsdóttir, fyrrverandi dósent í landafræði, er látin, níræð að aldri. Greint er frá andláti Guðrúnar í Morgunblaðinu í dag.
Guðrún fæddist í Dengzhou í Kína þann 12. febrúar 1930. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík, stundaði nám í landafræði, sögu og ensku við Háskólann í Osló.
Guðrún var svo kennari, meðal annars við Háskóla Íslands frá árinu 1974 þar sem hún átti stóran þátt í að byggja upp nám í landafræði.
Börn Guðrúnar eru Egill Helgason sjónvarpsmaður og Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.
Egill Helgason skrifaði fallega grein um móður sína í tilefni af 90 ára afmæli hennar þann 12. febrúar síðastliðinn. „Um hana er margt að segja, meðal annars má geta þess hvað hún er mild og góð, kurteis og fáguð, gáfuð og dugleg,“ sagði Egill meðal annars.
Guðrún lést á hjúkrunarheimilinu Grund á sunnudag en þar hafði hún dvalið síðustu árin.