Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, er látin, 86 ára að aldri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandenum hennar. Hún lætur eftir sig fjögur börn og fjölda barnabarna.
Guðrún fæddist í Hafnarfirði þann 7. september 1935. Allt frá því hún gaf út sína fyrstu bók árið 1974, Jón Odd og Jón Bjarna, hefur hún verið einn vinsælasti og virtasti barnabókahöfundur þjóðarinnar Um var að ræða fyrstu bókina í þríleik en eftir það sendi hún frá sér 25 bækur og heillaði margar kynslóðir á Íslandi.
Samhliða ritstörfum sínum tók Guðrún sæti sem borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins árin 1978 til 1983 og var ritari þess. Í framhaldinu settist hún á þing og var alþingismaður árin 1979 til 1995.
Guðrún var forseti Alþingis árin 1988 til 1991, og varð fyrst kvenna til að gegna því embætti á sameinuðu þingi. Áður var hún fyrsti og þriðji varaforseti Alþingis. Þá var Guðrún varaþingmaður árin 1995, 1997 og 1998.
Málverk af Guðrúnu, eftir Eirík Smith, var afhjúpað í Alþingishúsinu árið 2000.
Guðrún fluttti margar eftirminnilegar ræður á Alþingi og meðal hennar helstu baráttumála voru réttindi barna og eldri borgara.
Fjallað er nánar um æviferil Guðrúnar á vef Fréttablaðsins.