Guðrún Aspelund: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsti heimsfaraldur kemur - Myndband

Guð­rún Aspelund sótt­varna­læknir segir það ekki spurningu hvort heldur hve­nær næsti heims­far­aldur ríði yfir.

„Við eigum alveg örugg­lega von á ein­hverju,“ segir Guð­rún í við­tals­þættinum Manna­máli sem sýndur verður í kvöld á Hring­braut. Þar fer hún yfir mögu­lega heims­far­aldra sem mann­kynið þarf að glíma við á næstu árum.

„Lang­lík­legastur er heims­far­aldur in­flúensu,“ segir Guð­rún. Vegna lofts­lags­breytinga og hlýnunar jarðar sé líka mögu­leiki á því að skæðar pestir, sem herji á heitari lönd, færi sig yfir til þeirra kaldari. Þar megi nefna smit­sjúk­dóma sem fylgja moskító.

Eins megi allt eins búast við nýju af brigði af fugla­flensu sem berist ekki bara úr dýrum í menn, eins og nú gerist, heldur á milli manna. Slík af­brigði verði að taka al­var­lega.

Guð­rún segir bar­áttuna við Co­vid-19 frá­leitt að baki. Tuttugu til þrjá­tíu greinist enn á dag. Lík­lega smitist helmingi fleiri. Pestin muni fylgja mann­kyninu inn í ó­komin ár. Á­hyggjur er nú af því að nýr far­aldur brjótist út í Mið­baugs-Gíneu.

„Ein­kennin eru svipuð og í ebólu­smitum,“ segir Kamilla Sig­ríður Jósefs­dóttir smit­sjúk­dóma­læknir. Veiran var ein­angruð á rann­sóknar­stofu í Þýska­landi.