Guðný María Arnþórsdóttir, söngkona og gleðigjafi, segist hafa farið heim af bráðamóttökunni aðfaranótt laugardags með hjartað fullt af þakklæti til besta hjúkrunarfólks í heimi.
Guðný greindist fyrr á þessu ári með ólæknandi krabbamein í beinmerg en þrátt fyrir erfið veikindi heldur hún í jákvæðnina.
Í færslu á Facebook-síðu sinni á laugardag segist Guðný hafa gefist upp á föstudag eftir að hafa verið með stöðugar höfuðkvalir.
„Ég komst ekki í skólann í vikunni og þótt ég fengi mér Panodil, þá gat ég eins étið sokkana mína. Í gær gafst ég upp og hringdi upp á Krabbameinsdeild, þeir sendu mig á slysadeildina,“ sagði Guðný í færslunni á laugardag.
„Á biðstofunni talaði maður svo hátt, þá hélt ég um höfuð mér til að verjast hávaðanum. Loks kemur hjúkrunarfræðingur og biður mig um að fylgja sér inn í sjúkrastofu. Þar var dimmt og dásamlegasta rúm í allri veröldinni, ásamt þögninni. Eftir einhverja stund kemur kona og spyr hvort hún eigi ekki að loka glugganum en kaldur stormur gaus þar inn og hvort ég vilji ekki fá sæng. Jú, ég var þakklát, stundum kann Guðný María ekki að hugsa um sig frekar en þegar hún var eins árs og fór fyrst að heiman. Ég er að læra það.“
Guðný María segir að læknir hafi komið til hennar og lesið sér til um lyfin hennar. Hann hafi komist að því að höfuðkvalirnar voru aukaverkun af öðru þeirra krabbameinslyfja sem hún tekur.
„Hann gerði fleira, honum tókst að útskýra fyrir mér hvernig ég hefði samt komið betur út úr þessum lyfjakúr en síðasta. Stundum treysti ég ekki, en hann fékk mig jafnvel til að brosa og hann brosti. Ég fékk ibúfen í æð og verkurinn hvarf rólega.
Guðný fékk svo að fara heim klukkan hálf fimm að morgni laugardags „með hjartað yfirfullt af þakklæti til besta hjúkrunarfólks í veröldinni á bráðamóttökunni.“