Guðný Ljósbrá Hreinsdóttir komst í fréttirnar fyrir 26 árum þegar hún varð fyrir því óláni að gleypa títuprjón, þá aðeins tíu mánaða gömul.
Eins og flestir vita getur slíkt verið stórhættulegt enda getur oddhvass prjónninn valdið allskonar vandræðum þegar hann kemst í meltingarveginn.
Guðný rifjaði þetta upp á Twitter þar sem hún birti skjáskot af umfjöllun Morgunblaðsins árið 1995.
„26 ár í dag síðan að ég (icon) gleypti títuprjón og dó næstum mjög dramatískum dauða,“ segir hún með færslunni.
Í fréttinni kom fram að Guðný hafi verið í gæslu ömmu sinnar, Guðnýjar Hálfdánardóttur, þegar slysið varð. Guðný litla var að leika sér í leikgrindinni sinni þegar amma hennar tók eftir því að hún var að japla á einhverju. Stuttu síðar áttaði hún sig á því að litla stúlkan var með títuprjón í munninum.
„Mér brá auðvitað og reyndi að ná honum út úr henni. Hún vildi hins vegar ekki gefa eftir og kyngdi títuprjóninum áður en mér tókst að ná honum,“ sagði amma hennar í viðtalinu. Úr varð að hún dreif sig með hana á slysavarðstofuna þar sem sérfræðingar í háls-, nef- og erynalækningum báru saman bækur sínar um hvernig væri best að meðhöndla Guðnýju.
Tekin var ákvörðun um að fjarlægja prjóninn hið snarasta.
„Við vorum svo heppin að eiga hérna segul og gátum þrætt hann í gegnum speglunartækið sem rennt hafði verið ofan í maga barnsins. Eftir að segullinn hafði gripið títuprjónshausinn renndum við honum út aftur og speglunartækinu á eftir. Guðný var ekki svæfð heldur fékk hún róandi lyf og var ákaflega syfjuð á meðan aðgerðin var gerð en hún tók aðeins um fimmtán mínútur,“ sagði Ásgeir Theodór, sérfræðingur í meltingarsjúkdómum sem framkvæmdi aðgerðina, í viðtali við Morgunblaðið.
Eftir eina nótt á barnadeild Borgarspítalans var Guðný útskrifuð.
Aðspurð segir Guðný að henni hafi ekki orðið meint af og hún hafi í raun aldrei verið betri en nú. Höggið hafi sennilega verið meira fyrir aðstandendur hennar en hana sjálfa á þessum tíma.
Guðný tekur svo fram í færslu sinni á Twitter að það hafi svo verið tekið viðtal við hana á bleyjunni þegar hún var ellefu mánaða og sýnt í kvöldfréttum Stöðvar 2. Hún segist ekki hafa fundið klippuna en væri mjög þakklát fyrir að fá afrit af henni ef einhver hefur aðgang að henni.
26 ár í dag síðan að ég (icon) gleypti títuprjón og dó næstum mjög dramatískum dauða pic.twitter.com/734u7FaQfp
— Guðný Ljósbrá (@gudnyljosbra) August 18, 2021