Guðni vill ekki svara Ólafi Ragnari

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, vill ekki tjá sig um ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta, um stækkun NATO og ábyrgð NATO ríkja á innrás Rússa í Úkraínu.

Þetta kemur fram á vef mbl.is en Ólafur Ragnar gagnrýndi ESB og NATO í Silfrinu um helgina fyrir að hafa gefið úkraínsku þjóðinni fyrirheit um aðild að samböndunum, án þess að meina það raunverulega.

„Kannski ætt­um við að líta á nýj­an hátt á þess­ar kenn­ing­ar sem urðu ekki ofan á, því sú lína sem varð ofan á var; stækk­um NATO, tök­um fleiri lönd inn og niðurstaðan af því er þetta hræðilega stríð,“ sagði Ólaf­ur meðal ann­ars.

Guðni Th. hefur sjálfur fordæmt innrás Rússa í Úkraínu. Sagði hann: „Sjálf­stæði og full­veldi ríkja má ekki skerðast við það að þau eigi landa­mæri að hernaðar­veldi.“

Ólafur Ragnar sagði inngöngu þessara landa í NATO ekki beinlínis ástæðu fyrir stríðinu.

„Nei, ég er ekki að segja að það sé ástæðan, en við verðum að hafa, um leið og við gagn­rýn­um Rússa mis­kunn­ar­laust fyr­ir þessa styrj­öld og hvernig er farið er með fólkið, þá verðum við líka að hafa in­tell­ekt, heiðarleika og kjark til þess að horf­ast í augu við það að, til dæm­is viðskiptaþving­an­irn­ar sem við sett­um á eft­ir Krímskag­ann, þær hafa eng­um ár­angri skilað,“ sagði Ólafur.

„Það að stækka NATO og stækka NATO hef­ur leitt til mestu styrj­ald­ar í Evr­ópu, það hef­ur alla vega ekki komið í veg fyr­ir það, og svo höf­um við talið okk­ur sjálf trú um það að Rúss­land væri svo veikt efna­hags­lega.“