Guðni var vakinn á værum svefni: Er nú á leið í björgunarleiðangur

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands er um borð í varðskipinu Freyju sem er á leið að togaranum Hrafn Sveinbjarnarsyni sem varð aflvana fimmtíu sjómílum norð-norð-vestur af Straumnesi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Guðni og bílstjóri hans fengu far með skipinu til Patreksfjarðar vegna minningarathafnar sem fer þar fram síðar í dag, en tvísýnt þótti um landleiðina til Patreksfjarðar.

„Forsetinn var vakinn upp af værum svefni og rætt um hvort að hann vildi að reynt yrði að setja hann í land en vildi hann ekki að aðgerðir varðskipsins tefðust vegna þess og siglir því með skipinu. Að sögn skipherra varðskipsins Freyju er forsetinn orðinn sjóaður og fylgist vel með gangi mála.“ segir í tilkynningu Landhelgisgæslunnar

Það var klukkan fjögur í nótt sem skipstjóri togarans Hrafns Sveinbjarnarsonar hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og tilkynnti að skipið væri aflvana.

Haft var samband við varðskipið Freyju sem þá var á leið inn á Patreksfjarðarflóa en fyrirhugað var að skipið yrði hluti af minningarathöfn vegna snjóflóðsins sem féll á Patreksfjörð fyrir fjörutíu árum síðan.

Varðskipið hélt af stað og er áætluð koma skipsins að togaranum um klukkan ellefu í dag.

„Reynt verður að aðstoða vélstjóra togarans við að koma vélum í lag en ef það heppnast ekki þá draga hann áleiðis til Ísafjarðar. Sæmilegasta veður er eins og er þar sem Hrafn Sveinbjarnarson er staddur en spáð er að veður versni þegar líða tekur á daginn.“ segir í tilkynningunni.