Guðni: „Tjón vegna heimsku og græðgi þeirra auðugustu“

„Co­vid-pest af sama toga kom upp 2004 en þá tókst að kæfa hana. Svína­pestin gerði árás 2009 og nú hin ban­væna pest á ný. Allt stafar þetta af sóða­skap og við­bjóði í kringum mat­væla­markaði og verk­smiðju­bú­skap,“ segir Guðni Ágústs­son, fyrr­verandi þing­maður og ráð­herra, í að­sendri grein í Morgun­blaðinu í dag.

Mat­væla­fram­leiðsla er Guðna hug­leikin og hefur hann talað mikið fyrir því að Ís­lendingar geti staðið sjálfir undir fram­leiðslu mat­væla. Í grein sinni í dag undir­strikar hann þessa skoðun sína og ræðir meðal annars á­hrif CO­VID-19.

„Heims­myndin er breytt og heimurinn hefur beðið tjón vegna heimsku og græðgi þeirra auðugustu. Flutningurinn á mat­vælum heims­álfa á milli er brot á mann­réttindum og þaðan kemur fárið aftur og aftur, í dýra­níði í verk­smiðju­bú­skap, lyfjum og mengaðri jörð. Ís­lenskar sveitir eru mat­væla­kistur ekkert síður en hafið kringum landið. Við eigum heita og kalda vatnið, svala lífs­andann og eitur­lausa jörð, heil­brigða bú­fjár­stofna, góða bændur,“ segir Guðni í grein sinni þar sem hann hvetur stjórn­mála­menn til að vakna og segja sig frá svona „al­þjóða­brjál­æði“ strax.

„Biðjum okkar bændur að fram­leiða mat­vælin. Því verða stjórn­mála­mennirnir að vakna af sínum vonda draumi og þjónkun við heild­sala­gróðann og fara að efla Ís­land allt til mat­væla­fram­leiðslu. Kjötið allt, mjólkur­vörur og græn­meti verði heima­fengið og heima­ræktað,“ segir Guðni sem segist hafa fengið góðar undir­tektir við pistlum sínum að undan­förnu.

„Hvar sem ég fer kemur fólk til mín og segir: „Þetta er rétt með land­búnaðinn, við eigum að efla hann.“ Þarna er unga fólkið statt sem í vaxandi mæli spyr sig hvað það setur í magann og hvaðan fæðan kemur og hvernig er með­ferð dýranna og fram­leiðslu­ferlið. Við getum lifað enn betra lífi í landinu okkar ef heil­brigð sjónar­mið fá að ráða ferðinni en ekki skyndi­gróði, og galin heims­mynd sem nú liggur í fjör­brotum. Vilji er allt sem þarf. Hvað vilja stjórn­mála­mennirnir?“