„Er það ekki stórfrétt þegar fyrirtæki gefur 180 þúsund máltíðir til bjargar fólki í erfiðleikum?“
Þessari spurningu varpar Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, í pistli í Fréttablaðinu í dag.
„Það var glæsilegt framtak og sennilega afrek síðasta árs þegar Kaupfélag Skagfirðinga ákvað að gefa níutíu þúsund máltíðir til þeirra á Íslandi sem efnaminnstir eru, og vegna Covidpestarinnar standa höllum fæti. Fregnin flaug um byggðir landsins og hjálparstofnanir fögnuðu og gátu fyllt maga margra sem lítið áttu til að kaupa sér mat og jólin urðu með öðrum brag hjá þessu fólki. Enn gefur kaupfélagið og nú níutíu þúsund máltíðir til viðbótar til vors,“ segir Guðni.
Hann rifjar upp að Thor Jensen, bóndi og athafnamaður og forfaðir Thorsaranna, hafi gert slíkt í Spænsku veikinni árið 2018.
„Hann hafði útgerðarfélagið Kveldúlf á bak við sig. Nú standa Þórólfur Gíslason og samvinnumennirnir í sporum Thors Jensens í Covid með Kaupfélag Skagfirðinga á bak við sig. Lítið hefur verið rætt um stórgjöfina á Ríkisútvarpinu. Þó er Jónas frá Hriflu, samvinnuleiðtoginn, talinn vera guðfaðir Ríkisútvarpsins.“
Guðni segir svo í pistli sínum að presturinn í Seltjarnarneskirkju hafi fengið messu senda út á RÚV einn sunnudaginn.
„En séra Bjarni Bjarnason prédikaði vel og hann lofaði og þakkaði framtak kaupfélagsins. Blessuð veri íslensk matvælaframleiðsla, bændur og sjómenn þessa lands. Ef við ekki stöndum vörð um okkar landbúnað mun enginn hjálpa á neyðartímum eins og kaupfélagið nú og Kveldúlfur 1918. Við Íslendingar eigum einn best rekna sjávarútveg heimsins. Við eigum líka einstakan landbúnað sem er í hættu vegna þess að stjórnmálamennirnir hafa höggvið undan honum hornsteinana,“ segir Guðni sem endar pistil sinn á þeim orðum að það sé hrein lífsnauðsyn að hér sé öflug landbúnaðarframleiðsla.
„En hér eru enn til öflug fyrirtæki í almannaeigu sem gefa af auðmýkt og lítillæti þegar neyðin er stærst. Er það ekki stórfrétt þegar fyrirtæki gefur 180 þúsund máltíðir til bjargar fólki í erfiðleikum?“