Guðni sjaldan séð aðra eins yfirburði og hjá Ásmundi Einari

Guðni Ágústsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, er mikill aðdáandi Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra. Guðni skrifar lofræðu um Ásmund í Morgunblaðinu í dag og raunar Lilju Alfreðsdóttur menningarmálaráðherra einnig.

„Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra hefur reynst starfi sínu vaxinn á kjörtímabilinu, ég man ekki eftir svo afgerandi félagsmálaráðherra. Hann hefur komið með miklar úrbætur í málefnum barna og unglinga og til að verkefnið væri augljóst tók ráðherrann upp titilinn félags- og barnamálaráðherra,“ segir Guðni og bætir við að Ásmundur Einar sé ungur fjölskyldufaðir og fyrsta verkefni hins unga ráðherra hafi verið að snúa sér að málefnum barna.

Guðni segir að Styrmir Gunnarsson heitinn, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, hafi verið meðal þeirra sem voru Ásmundi Einari innan handar – enda hafi hann neft Ásmund oftar í greinum sínum en nokkurn annan stjórnmálamann á síðustu misserum.

„Þessi glæsilega stefnumótun ráðherrans hefur hitt í mark; nú er Ásmundur Einar næstvinsælasti ráðherra ríkisstjórnarinnar og sagður hástökkvari vinsældanna og Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra skipar þriðja sæti á vinsældalista ríkisstjórnarinnar. Ásmundur og Lilja fara með málefni barna og ungs fólks með glæsibrag,“ segir Guðni sem bætir við að nú sé röðin komin að eldri borgurum. Ásmundur Einar ætli að bretta upp ermarnar og ætli með sama hætti að ganga í málefni eldri borgara.

„Loksins höfum við eignast öflugan félagsmálaráðherra fólksins og það sem miklu merkilegra er að sjálfur var ráðherrann í stöðu Öskubusku litlu í æsku sinni en reis eins og hún í ævintýrinu,“ segir Guðni en grein hans má lesa í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.