Guðni sendir þjóðinni skila­boð: „Kæru lands­menn. Við erum í vanda“

Guðni Th. Jóhannes­son, for­seti Ís­lands, hvetur lands­menn til að fylgja til­mælum og leið­beiningum nú þegar hertar reglur gegn CO­VID-19 taka gildi á morgun. Hvetur hann Ís­lendinga til að sýna hvað í þeim býr.

Guðni skrifaði eftir­farandi færslu á Face­book-síðu sína í kvöld.

„Kæru lands­menn.
Við erum í vanda. Á morgun verða varnir gegn veirunni skæðu þess vegna hertar enn frekar. Nýjar reglur gilda um höfuð­borgar­svæðið. Kynnum okkur allar upp­lýsingar á co­vid.is. Stöndum saman í þessu. Við gerðum það í vor og getum það enn. Ein­hugur kemur okkur öllum til góða en lang­mest þeim sem á því þurfa helst að halda, fólkinu sem er veikast fyrir og þeim sem sinna sjúkum. Í stritinu miðju stoðar lítt að velta vöngum yfir því hvað hefði kannski mátt gera öðru­vísi, ræðum það síðar. Ég hvet alla til að fylgja til­mælum og leið­beiningum og verða þannig að liði í þessu á­gæta sam­fé­lagi okkar. Sam­staða í þágu þjóðar, þraut­seigja í verki. Látum þetta sannast um okkur. Við erum öll al­manna­varnir. Sýnum hvað í okkur býr.“