Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, segir að vonir hljóti að standa til þess að óhætt verði senn að slaka á hertum aðgerðum vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.
Guðni skrifar pistil á Facebook-síðu sína þar sem hann sendir þjóðinni baráttukveðjur, en hann hefur sjálfur dvalið í sóttkví á Bessastöðum eftir að starfsmaður þar greindist með veiruna.
„Blessunarlega heilsast honum vel og sjálfur kenni ég mér einskis meins. Ég ítreka þakkir fyrir hlýjar kveðjur sem mér hafa borist. Nú í morgunsárið fór ég í skimun á Landspítala og reyndist neikvæður,“ segir Guðni.
Guðni nefnir í pistli sínum einnig fjölda þeirra sem hafa látist af völdum COVID-19 hér á landi að undanförnu. Sem fyrr sendi ég ástvinum samúðarkveðjur.
„Að undanförnu hefur smitum fækkað. Hertar aðgerðir gegn útbreiðslu farsóttarinnar hafa greinilega skilað árangri og vonir hljóta að standa til þess að senn verði óhætt að slaka á þeim að einhverju leyti. Gott hefur verið að sjá að langflestir íbúar landsins styðja atbeina sóttvarnaryfirvalda og stjórnvalda, ekki vegna boðvalds þeirra heldur vegna þess að fólk hefur fundið gildi samtakamáttar í þessum efnum, komist að niðurstöðu um það á eigin forsendum og eftir eigin hyggjuviti.“
Guðni segir að um leið verðum við að huga að því að varnir gegn veirunni skapi ekki verri vanda til frambúðar á öðrum vettvangi. Þessa jafnvægislist stundi stjórnvöld dag hvern, með vísindalega ráðgjöf og önnur sjónarmið í huga.
„Og þrátt fyrir allan okkar ærna vanda – eða jafnvel frekar vegna hans – er brýnt að missa ekki móðinn. Farsóttin og varnir gegn henni valda víða usla. Fólk hefur látist og veikst illa, margir hafa misst atvinnu sína, fyrirtæki berjast í bökkum, skólahald er með óvenjulegum hætti og miklar skorður reistar við hvers kyns afþreyingu og listum, tómstundum og íþróttum. En hér verðum við líka að greina á milli áfalla og óþæginda. Gerum ekki illt verra með því að ýkja andbyrinn og gefast upp. Sýnum frekar hvað í okkur býr, leitum lausna, stöppum stálinu í hvert annað og látum ekki neikvæðni, beiskju og reiði ráða för. Það fer sjaldnast vel,“ segir Guðni sem minnir einnig á mikilvægi hreyfingar og útiveru fyrir líkama og sál.
„Það fann ég í minni sóttkví að reyndist vel, komast undir bert loft, reyna aðeins á sig.“
Kæru landsmenn. Í mínum embættisstörfum bar það helst til tíðinda í nýliðinni viku að ég þurfti að fara í sóttkví eftir...
Posted by Forseti Íslands on Mánudagur, 9. nóvember 2020