Guðni Ágústsson, fyrrverandi alþingismaður og landbúnaðarráðherra, sendir Guðjóni Sigurbjartssyni viðskiptafræðingi tóninn í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. Um er að ræða svar Guðna við grein sem Guðjón skrifaði og birt var í Fréttablaðinu þann 3. júní síðastliðinn.
Í grein sinni gagnrýndi Guðjón málflutning Guðna sem er mikill stuðningsmaður íslensks landbúnaðar. Sagði Guðjón að landbúnaður á Íslandi kostaði skattgreiðendur 15 milljarða króna á ári og og neytendur, með tollvernd og innflutningshömlum, 25 milljarða til viðbótar.
Í grein sinni í dag segir Guðni að Guðjón sé sjálfskipaður í liði höfuðpauranna sem alltaf velja að vera á móti íslenskum landbúnaði. „Virkar öfgafullur eða í hagsmunabaráttu, ekki ólíklega launaður málaliði andspyrnuhreyfingarinnar,“ segir Guðni um Guðjón.
Í grein sinni skaut Guðjón fast á Guðna og sagði að þegar hann hefði lokið sér af í sérhagsmunabaráttunni fyrir bændur fari hann til Kanarí. „Þar borðar hann hin ágætu matvæli sem Spánn býður upp á og nýtur góða verðsins. Enda öruggur, því að meðalaldur Spánverja er hærri en Íslendinga, þrátt fyrir sýklalyfjanotkun í landbúnaði.“
Guðni segir að Guðjón neiti öllum rökum um vanda ESB-bænda í notkun sýklalyfja í fóður búfjár. „Og allt er betra og ódýrara á Spáni og þar er maturinn ódýr. En maturinn þar er afsprengi launanna. Þar kostar 12 evrur að klippa Guðjón, og rauðvínsflaskan kostar sáralítið. Það er gott að vera á íslenskum launum þegar maður nýtur þessa hvort tveggja á Kanarí.“
Guðni segir að nú fari lítið fyrir hinum þremur aðalandstæðingum íslensks landbúnaðar. „Eða hvað heita þeir? Jú, Andrés, Ólafur og Þórólfur, sem líka lærði yfir sig í reiknikúnstum hagfræðinnar,“ segir Guðni og á þar við Þórólf Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands.
Hann segir að þjóðin vilji ekki flytja grænmeti hingað frá Chile, hvað þá hrátt kjöt héðan og þaðan. Hann segir að ástæðan sé þessi:
„Vegna þess að læknarnir og prófessorar heimsins, sem lærðu sér til gagns, mæla gegn því og fólkið dásamar okkar íslensku landbúnaðarvörur fyrir gæði og heilbrigði.“