Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hefur sent Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, og Melaniu Trump forsetafrú batakveðjur eftir að þau greindust með kórónuveiruna, COVID-19.
Frá þessu er greint á vef forsetaembættisins. Forsetahjónin greindust jákvæð í gærkvöldi og eru þau enn sem komið er með lítil einkenni. Veikindin koma á slæmum tíma fyrir Trump enda mánuður þar til kosið verður í embætti Bandaríkjaforseta.
Í kveðju sinni lýsti Guðni þeirri von að bóluefni, lyf og lækningar finnist senn við þessum vágesti sem hefur valdið svo miklum skaða og usla um víða veröld.