Guðni sameinaði Verbúðina og Seinfeld: „Þetta bjargaði þessum grámyglaða mánudegi algjörlega“

Ver­búðin heldur á­fram að slá í gegn og í gær­kvöldi var sér­stak­lega tekið eftir dansi Gísla Arnar Garðar­sonar við Fræbbbblana. Þarna gefur að líta mann í ryk­frakka að dansa við tón­list sem er ekki endi­lega sú tón­list sem hann setur á heima hjá sér.

Búið er að deila dönsum annarra ráðherra frá þessum tíma á Twitter, gefur þar að líta danshæfileika Össurar Skarphéðinssonar, Ólafs Ragnars Grímssonar og Steingríms Hermannssonar.

Margir hafa líkt þessum dönsum við dans Elaine Benes úr þáttunum Seinfeld, steig hún þar svo hræðilegan dans að hann hefur stimplað sig inn í bandaríska sjónvarpssögu.

Guðni Halldórsson kvikmyndaklippari notaði tækifærið í ljósi þess að þessi dans úr Verbúðinni verður líklega jafn eftirminnilegur hér á landi og klippti þau saman:

Margir hafa fagnað þessu á Twitter, þar á meðal Róbert nokkur sem segir: „Þetta bjargaði þessum grámyglaða mánudegi algjörlega.“