Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, var í skemmtilegu spjalli í Brennslunni á FM957 í morgun. Ríkarð Óskar Guðnason, einn af stjórnendum þáttarins, spurði Guðna þá nokkurra spurninga í svokallaðri yfirheyrslu og er óhætt að segja að hann hafi sýnt á sér áður óþekktar hliðar.
Guðni var meðal annars spurður hvað væri næst versta áleggið á pítsu á eftir ananas. Guðni var ekki lengi að nefna ansjósur, en eins og kunnugt er vakti yfirlýsing Guðna um ananas á pítsu mikla athygli á sínum tíma.
Þá segir Guðni að besta íslenska lag allra tíma sé lagið Kvaðning með Skálmöld. Þegar hann var beðinn um að nefna sína helstu kosti sem maki sagðist hann vera „ljúfur, skilningsríkur og samúðarfullur.“
Guðni sagðist hafa ætlað að verða læknir þegar hann yrði stór en eins og kunnugt er lagði hann sagnfræðina fyrir sig. Fari svo að hann nái ekki kjöri sem forseti næstkomandi laugardag kveðst hann helst vilja rannsaka gamla tíð og kenna sögu við einhvern háskóla.
Þegar hann var spurður um sína helstu galla, sagði hann: „Stundum mikla ég hluti fyrir mér og verð fúll án þess að hafa orð á því,“ sagði Guðni en bætti við að Eliza Reid, eiginkona hans, væri farin að kunna býsna vel á hann hvað þetta varðar.
Þegar hann var spurður hvaða frægu konu hann hafi verið skotinn í sem unglingur nefndi Guðni bandarísku leikkonuna Jamie Lee Curtis. Guðni svaraði fleiri skemmtilegum spurningum í spjallinu sem má sjá hér að neðan.
Guðni Th. var settur í yfirheyrslu í Brennslunni
Posted by FM957 on Þriðjudagur, 23. júní 2020