Guðni Már ó­sáttur: Ber saman Ís­land og Tenerife – „Er þetta heimskt eða er þetta heimskt?“

Guðni Már Hennings­son, fyrr­verandi út­varps­maður sem bú­settur er á Tenerife, skilur ekki hvers vegna ís­lensk yfir­völd ganga ekki lengra í að hefta út­breiðslu kórónu­veirunnar. Hann ber saman að­gerðir á Tenerife og svo á Ís­landi í pistli sem hann skrifaði á Face­book í gær.

„Af hverju er ekki sett al­gjört sam­komu­bann á? Af hverju eru skólar og leik­skólar enn þá opnir? Af hverju er landinu ekki lokað eins og aðrar þjóðir gera?“ spyr Guðni og bætir við að yfir 400 manns hafi nú smitast af veirunni og sjö liggi á sjúkra­húsi. Samt sé enn opið fyrir ferða­menn, smitaða og ó­smitaða.

„Og síðan reyna ráða­menn að fá Trump til að gefa Ís­lendingum breik, fá undan­þágu frá banninu banda­ríska. Svo er talað um að allir ættu að þvo sér sem oftast. Lík­lega til að forðast smit. En þó er í lagi að eitt hundrað manns geti safnast saman hvar sem er. Bara ef menn skrúbba sig vel og vand­lega á eftir. Er þetta heimskt eða er þetta heimskt?“

Guðni Már ber þetta svo saman við stöðu mála á Tenerife.

„Ég má fara út í búð. Það mega vera tveir inni í einu, ekki hundrað manns. Ég má fara í bankann. Einungis tveir inni í einu enda komast lík­lega ekki fleiri fyrir því það er einungis opið fyrir hrað­bankann. Veitinga­staðir, barir, bíó og sund­laugar, allt er lokað. Hingað til Tenerife koma um það bil sex milljónir túr­ista á ári. Samt eru hér færri smitaðir en á Ís­landi. Hér búa líka þrisvar sinnum fleiri og það á pínu­litlu ey­landi. Hér ríkir út­göngu- og sam­komu­bann.“

Guðni viður­kennir að þó að þetta sé leiðin­legt sé það ef til vill hundrað sinnum betra en að smitast af CO­VID-19