Guðni lætur Stein­grím heyra það: Allt sitt líf til­heyrt minni­hluta

„Stein­grím­ur hef­ur allt sitt líf til­­heyrt þeim minni­hluta sem Al­þýðu­banda­lagið gamla var og Vinstri-græn­ir eru,“ segir Guðni Ágústs­son, fyrr­verandi ráð­herra og þing­maður, í að­sendri grein í Morgun­blaðinu í dag.

Þar sendir hann Stein­grími J. Sig­fús­syni, for­seta Al­þingis og þing­manni VG, væna pillu í kjöl­far um­mæla Stein­gríms um hinn grenjandi minni­hluta í síðustu viku. Stein­grímur steig þá í pontu vegna frum­­varps um Há­­lendis­­þjóð­­garð og sagði hann að málið nyti stuðnings þjóðarinnar. Hinn „grenjandi minni­hluti“ ætti ekki að hafa neitunar­vald.

Guðni segist hafa verið svo heppinn að hafa verið við sjón­varps­skjánum að horfa á um­ræður frá Al­þingi þegar Stein­grímur „reif af sér grímuna, steytti hnefann að fornum sið og hætti um stund að vera for­seti Al­þingis.“

„Á einu auga­bragði varð hann sá gamli góði Stein­grím­ur sem við þekkt­um. Nú miklaðist hann af því að vera meiri­hlut­inn og hans menn skyldu reisa drauma­ríkið á mið­há­­lend­inu. En „ör­lít­ill grenj­andi minni­hluti“ fékk held­ur bet­ur á kjaft­inn. Stein­grím­ur hef­ur allt sitt líf til­­heyrt þeim minni­hluta sem Al­þýðu­banda­lagið gamla var og Vinstri-græn­ir eru og sá minni­hluti átti töl­una tíu pró­­sent af kjós­enda­kök­unni en var samt, að mati gamla ræðugarps­ins, þá einnig hand­hafi meiri­hlut­ans.“

Guðni lýsir svo skoðun sinni á frum­varpinu og segir að með því sé ætlunin að reisa ríkis­báknið í fullri al­vöru á þjóð­lendunni mið­há­lendi Ís­lands.

„Nú kall­ar Stein­grím­ur for­­seti, kom­inn í gervi gamla Stein­gríms, bænd­ur, úti­­vist­ar­hópa og nátt­úru­unn­end­ur sem unna há­­lend­inu eins og það er „ör­lít­inn grenj­andi minni­hluta“, sem ætl­ar með heimsku að skjóta stærsta þjóð­garð í Evr­ópu úr hendi þjóðar­inn­ar. Hug­­mynd­in er að rík­is­­stofn­un í Reykja­­vík taki að sér af­rétt­ar­lönd­in, sekti og rukki alla unn­end­ur há­­lend­is­ins, reki bænd­ur og sauð­kind­ina til byggða.“

Grein Guðna má lesa í heild sinni í Morgun­blaðinu.