Guðni jarðar samsæriskenningasmiði: „Frelsi til að sýkja aðra er rangsnúinn réttur“

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hélt ræðu við þingsetningu Alþingis sem fram fór nú fyrr í dag. Þar fór hann um víðan völl af sinni alkunnu yfirvegun og minntist vitaskuld á kórónaveirufaraldurinn sem hefur gert Íslendingum og heimsbyggðinni allri lífið leitt undanfarin tæp tvö ár.

Guðni gaf lítið fyrir efasemdarraddir í umræðunni um hvernig tækla skuli faraldurinn. Erfiðleikar fylgi frjálsum skoðanaskiptum. Gefum Guðna orðið:

„Enn setur heimsfaraldur sinn svip sinn á samfélagið og þingstörfin þar með talin. Sem fyrr sýnist sitt hverjum um sóttvarnir. Vissulega hefur hin eina rétta leið ekki alltaf verið valin, skárra væri það nú, enda oft úr vöndu að ráða og auðvelt að vera vitur eftir á,“ sagði Guðni.

Sumir saki aðra um ýmislegt misjafnt: „Þá gerist það gjarnan, í vandasömum málum, að einn saki annan um að vaða í villu og svíma. Nenna ekki að kynna sér neitt, hlýða bara yfirvöldum í blindni og ótta,“ hélt Guðni áfram.

Þá geti hið öfuga sömuleiðis gerst: „Eða á hinn bóginn, að sá eða sú sem í hlut eigi, trúi aðeins á samsæriskenningar, hugsi um eigin haf en ekki heildarinnar og geri lítið úr augljósri ógn,“ bætti Guðni við.

Hann segir ýmsa erfiðleika geta fylgt frjálsum skoðanaskiptum: „Öfgar og ýkjur geta fylgt frjálsum skoðanaskiptum, en við höfum boðið gæfu til þess, íbúar þessa lands, að standa að mestu saman andspænis sameiginlegri vá. Sú eining hefur byggst á almennri skynsemi, almennri umræðu, almennri þekkingu og almennu trausti,“ sagði Guðni.

Forsetinn segir það þekkjast vel að nýta sér sóttkví til þess að einangra smit af ýmsu tagi: „Í leit að rökum hafa mörg okkar eflaust sótt í sjóð reynslu og sögu. Við sem höfum notið þess að eignast börn munum flest eftir bólusetningum sem verja þau og annað fólk gegn skæðum sóttum. Við munum jafnvel líka að fengju þau hlaupabólu eða magakveisu þótti sjálfsögð skylda að halda þeim um skeið í sóttkví, fjarri leikskóla eða dagvistun. Frelsi til að sýkja aðra er rangsnúinn réttur,“ sagði Guðni.