Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, passar vel upp á móður sína í kórónuveirufaraldrinum sem nú geisar. Hann hefur gefið út tvær „forsetatilskipanir“ sem hafa það markmið að móðir hans smitist ekki af veirunni alræmdu.
Fjallað er um þetta skemmtilega mál í Morgunblaðinu í dag. Margrét, móðir Guðna, verður áttræð í vor.
Þann 9. mars síðastliðinn, um það leyti sem faraldurinn fór að láta á sér kræla hér á landi, sendi Guðni tölvupóst til fjölskyldu sinnar.
„Nýjar reglur fyrir heimsóknir til mömmu/ ömmu/gænku: 1) Ekki hætta alveg að heimsækja en fækka heimsóknum frekar en fjölga. 2) Allir sem koma byrja á að fara inn á bað og þvo sér í a.m.k. 20 sek. með sápu og svo handspritti. 3) Engar snertingar, handabönd eða knús. 4) Mamma/amma/gænka situr á sínum stól, aðrir fjær á sófa eða stól, í a.m.k. metra fjarlægð. 5) Forðast að snerta sömu hluti og hún notar, kaffibolla og slíkt. 6) Eins og þið vitið fær mamma/amma/gænka allar kvefpestir og árlegar flensur. Við tökum þetta alvarlega núna. Þetta er forsetatilskipun!“
Í Morgunblaðinu kemur fram að gælunafnið „grænka“ sé frá fyrri tíð þegar unga fólkið innan fjölskyldunnar gat ekki sagt orðið „frænka“.
Guðni sendi út aðra „tilskipun“ fimm dögum síðar þar sem fram kom að allar heimsóknir væru nú bannaðar. „Forsetatilskipun nr. 2 hér með gengin í gildi. Bestu kveðjur til ykkar allra!“