Guðni forseti: „Ég er kominn með co­vid“

Guðni Th. Jóhannes­son, for­seti Ís­lands, er kominn með Co­vid-19. Hann greinir sjálfur frá þessu í færslu á Face­book-síðu sinni.

„Þar kom að því. Ég er kominn með co­vid, vaknaði í morgun með ein­kenni flensu, fannst mér – þurran hósta, bein­verki og al­mennt slen. Tók heima­próf til öryggis og línurnar tvær komu glöggt í ljós.“

Guðni segir að hann sé frekar slappur og munu ráð­leggingar um smit­gát í fimm daga ráða því að dag­skrá hans á næstunni muni raskast nokkuð.

„Það er þó ekkert til að kvarta undan og ég vonast til að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið um leið og tök eru á. Nú vona ég að enginn hafi smitast af mínum völdum á við­burðum undan­farinna daga. Farið vel með ykkur og góða helgi.“