Skrifstofa forseta Íslands hefur sent Fréttablaðinu lista yfir þær gjafir sem Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hlaut í embætti sínu á síðasta ári.
Gjafirnar sem hann hefur fengið eru fjölbreyttar og nokkuð margar, eða 46 talsins.
Forsetinn fékk fjölda listaverka, skrautmuna og bóka.
Þá mætti sérstaklega nefna dularfulla rauða tösku frá samtökunum Force of Light Intergalactic. Í henni var mappa sem innihélt upplýsingar um félagið, sem og heiðursmeðlimakort stíluð á forsetahjónin.
Gjöfin var afhent á skrifstofu forseta af fulltrúum þessara samtaka, en í lýsingu skrifstofunar á henni segir að samtökin séu óþekkt og að upplýsingarnar í bæklingnum séu ótraustvekjandi. Fram kemur að formaður þessara samtaka heiti Freddy Lightworker.
Hægt að sjá lista yfir allar gjafirnar sem forseti Íslands hefur fengið á vef Fréttablaðsins hér. En þær eru talsvert margar.