Guðni dáður hjá íslensku þjóðinni: Sárafáir óánægðir með hann

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, nýtur yfirburðatrausts hjá íslensku þjóðinni ef marka má nýjan Þjóðarpúls Gallup. Hátt í þrír af hverjum fjórum eru ánægðir með störf hans, eða 73%, en nær einn af hverjum tíu er óánægður.

Í niðurstöðunum kemur fram að konur virðist vera ánægðari með störf Guðna en karlar.

„Einnig kemur fram munur eftir aldri en fólk er að jafnaði líklegra til að vera óánægt með störf Guðna eftir því sem það er eldra. Fólk með meiri menntun en minni er almennt ánægðara með störf Guðna og einnig kemur fram munur eftir fjölskyldutekjum, en tekjulægsti hópurinn er síst ánægður með Guðna. Mikill munur er á svörum fólks eftir því hvað það kysi til Alþingis. Nær 95% þeirra sem kysu Samfylkinguna eru ánægð með störf Guðna en 17% þeirra sem kysu Miðflokkinn,“ segir í niðurstöðum Þjóðarpúlsins.

29% svarenda sögðust að öllu leyti ánægðir með störf Guðna, 26% sögðust mjög ánægðir með störf hans, 18% sögðust frekar ánægðir, 17% sögðu hvorki né, 5% sögðust frekar óánægðir, 4% mjög óánægðir og aðeins eitt prósent sögðust að öllu leyti óánægðir með störf hans.