Guðmundur Jörundsson fatahönnuður er í hópi þeirra sem eru hvað mest áberandi á Twitter. Guðmundur kom með býsna frumlega uppástungu í dag í ljósi umræðunnar um Útlendingastofnun sem skýtur reglulega upp kollinum.
Uppástunga Guðmundar var svohljóðandi:
„Leggjum niður Útlendingastofnun og opnum Íslendingastofnun þar sem einu sinni í viku er einum Íslending sem er búinn að vera leiðinlegur of lengi er vísað úr landi. Ég skal vera fyrstur út.“
Óhætt er að segja að margir hafi tekið vel í hugmynd Guðmundar sem verður þó að líkindum aldrei að veruleika.
„Ég held að þetta sé besta hugmynd sem ég hef nokkurntímann heyrt, er með langan lista sem getur farið í röðina,“ segir í einni athugasemd. Annar stingur upp á því að valið verði úr kommentakerfum fjölmiðlanna þar sem „leiðinlegasta“ kommentið vinnur.
Halldór Auðar Svansson, fyrrverandi borgarfulltrúi Pírata, leitar í sögubækurnar og rifjar upp lög Grágásar sem voru í gildi á þjóðveldisöld. Þar var ein refsing sem kallaðist Fjörbaugsgarður, en þeir sem fengu þann dóm voru kallaðir fjörbaugsmenn og var þeim skylt að halda af landi brott innan þriggja sumra frá því að þeir voru dæmdir og dveljast erlendis í þrjú ár.
Halldór bætir svo við:
„En svona grínlaust þá þetta áhugaverð pæling - hvernig það þótti sjálfsagt áður fyrr að beita fólk sem braut gegn samfélaginu refsingum sem snerust um að útskúfa því en að í nútímanum er slegið skjaldborg um alla sem eru ríkisborgarar fyrir en stíf hliðvarsla til að komast inn.“
Leggjum niður Útlendingastofnun og opnum Íslendingastofnun þar sem einu sinni í viku er einum íslending sem er búinn að vera leiðinlegur of lengi er vísað úr landi. Ég skal vera fyrstur út.
— Guðmundur Jörundsson (@gudmundur_jor) May 27, 2021