Guð­mundur vill fara að fá svör: Hvernig verður bólusetningunni vegna COVID-19 háttað?

Guð­mundur Ingi Kristins­son, þing­maður Flokks fólksins, vill að ríkis­stjórnin upp­lýsi Al­þingi og þá um leið þjóðina um hvaða leið verður farin þegar bólu­efni gegn CO­VID-19 kemur loks á markað.

Guð­mundur Ingi kom inn á þetta í um­ræðum um störf þingsins í gær og benti hann á að far­aldurinn hefði valdið okkur þungum bú­sifjum. Yfir­völd í Fær­eyjum og Noregi virtust vera með skýra sýn um það hvernig bólu­setningu verður háttað en minna hafi heyrst frá ís­lenskum stjórn­völdum.

„Sem betur fer eru teikn á lofti um að það takist að þróa bólu­efni nú í vetur. Norsk stjórn­völd búast við því að bólu­efni verði til­búið snemma á næsta ári. Bent Høie, heil­brigðis­ráð­herra Noregs, lýsti því yfir í morgun þegar hann gaf norska Stór­þinginu munn­lega skýrslu um bar­áttu gegn Co­vid að bólu­efni gegn Co­vid verði ó­keypis fyrir alla norska borgara. Hvorki ein­staklingar, sveitar­fé­lög né sjúkra­hús munu þurfa að greiða neinn kostnað vegna þessa. Norski ríkis­sjóðurinn mun greiða allan kostnað. Í Fær­eyjum eru menn enn bjart­sýnni. Þar reikna heil­brigðis­yfir­völd með því að fyrstu Fær­eyingarnir verði bólu­settir fyrir jól. Bárður á Steig Niel­sen, lög­maður Fær­eyja, sagði við fær­eyska fjöl­miðla nú laust fyrir há­degi í dag að fær­eyska lands­stjórnin muni sjá til þess að allir Fær­eyingar verði bólu­settir ó­keypis,“ sagði Guð­mundur.

Hann spurði þingið hvað ís­lensk stjórn­völd ætli að gera og varpaði þeirri spurningu fram hvort hafinn væri undir­búningur fyrir fram­kvæmd bólu­setningar hér á landi og hver muni greiða kostnað vegna hennar.

„Verða reikningarnir sendir al­menningi eða greiðir ríkis­sjóður fyrir það og hvernig verður skipu­lagið við bólu­setningu? Verða á­hættu­hópar, svo sem fólk með undir­liggjandi sjúk­dóma, aldraðir og starfs­fólk í heil­brigðis­geiranum, settir í for­gang við bólu­setningu?“

Guð­mundur benti á að stefnt væri að því í Noregi að sveitar­fé­lögin sjái um að skipu­leggja bólu­setningu innan sinna hrepps­marka en ríkið greiði öll út­gjöld vegna þeirra.

„Er ríkis­stjórnin á Ís­landi eitt­hvað farin að hug­leiða þetta? Væri ekki ráð að ríkis­stjórnin upp­lýsti Al­þingi og þá um leið þjóðina um þessi mál? Hvernig ætlum við að haga bólu­setningunni?“