Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir það afar misráðið að láta hagsmunaaðila ráða för þegar kemur að opnun landsins þann 1. maí næstkomandi.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur gefið það út að litakóðakerfi Evrópusambandsins verði tekið upp um þarnæstu mánaðamót. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi að hann hefði heldur viljað taka mið af stöðu faraldursins áður en eitthvað yrði ákveðið með fyrirkomulag á landamærunum.
„Afar misráðið að láta hagsmunaaðila ráða för. Þeir standa vörð um sérhagsmuni –reyndar brýna og verðuga – en aðrir hagsmunir eru hér brýnni,“ segir Guðmundur Andri í færslu á Facebook-síðu sinni og bætir við að í baráttunni við veiruna þýði ekkert annað en að hafa hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi.
„Þar eiga vísindamenn að ráða för, enda þeim að þakka, en hvorki ríkisstjórn né ferðaþjónustu, hversu giftusamlega hefur tekist í þessari baráttu til þessa – þ.e.a.s. nema þetta sinn í fyrrasumar þegar látið var undan þrýstingi ferðaþjónustunnar.“
Jóhann Páll Jóhannsson, fyrrverandi blaðamaður og frambjóðandi Samfylkingarinnar fyrir komandi þingkosningar, tekur undir með kollega sínum í færslu á Facebook-síðu sinni í gær. „Ég hef engar forsendur til að ætla að ákvörðun ríkisstjórnarinnar sé eitthvað feigðarflan – en það veit ekki á gott ef ráðamenn eru hættir að eiga samráð við sóttvarnarlækni um grundvallarákvarðanir í sóttvarnarmálum. Slíkt samráð hefur einmitt verið lykillinn að því að kveða niður farsóttina,“ sagði hann meðal annars.
Sjá einnig:
Ernu líst ekki á blikuna: „Þetta er glapræði“ – Allt sem þarf er eitt smit
Illugi líka áhyggjufullur: „Þeir þurfa að græða sem eiga rútufyrirtæki og svoleiðis“