Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Ísafirði og frambjóðandi Viðreisnar fyrir komandi þingkosningar, segir að pólitískir valdataktar sterkra fyrirtækja séu engin nýlunda hér á landi.
„Við þekkjum það vel í sjávarþorpunum hvernig allskonar brögðum er beitt til að hafa áhrif á það hvernig fólk kýs og hvernig frambjóðendur raðast á lista. Sumir fara fínt í þetta og beita mjúkum þrýstingi. En svo eru það svæsnu dæmin. Þegar starfsfólki er beinlínis sagt að lífsviðurværi þess sé undir ef það kýs ekki „rétt”,“ segir Guðmundur á Twitter-síðu sinni.
Umræðan um Samherja og þær leiðir sem hin svokallaða skæruliðadeild hefur farið til að hafa áhrif í samfélaginu hefur vakið athygli. Hefur fyrirtækið meðal annars reynt að hafa áhrif á formannskjör í Blaðamannafélaginu og reynt að skipta sér af framboðsmálum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi.
Tekið skal fram að Guðmundur nefnir Samherja aldrei sérstaklega á nafn heldur talar meira almennt um þau brögð sem stórfyrirtæki grípa stundum til. Um verstu dæmin, þegar starfsfólki er sagt að lífsviðurværi þess sé jafnvel undir, segir hann:
„Slík bolabrögð beinast sérstaklega að láglaunafólki og verkafólki af erlendum uppruna. Aldrei rætt nema í hálfum hljóðum. Af ótta við ægivaldið. Skýr birtingarmynd sérhagsmunagæslu.“
Guðmundur segir að þetta sé ekki algilt og hann vilji ekki setja alla atvinnurekendur í þorpunum undir sama hatt.
„En svæsnu dæmin eru mörg og þá sérstaklega í fyrirtækjum tengdum sjávarútvegi. Höfum það alveg á hreinu að slíkum þrýstingi er beitt í krafti ægivalds yfir afkomu fólks og atvinnulífi í þorpunum. Sömu hagsmunahópar tryggja sér svo gripsterkt hreðjatak á kjörnum fulltrúum,“ segir hann.
Guðmundur, sem er fyrrverandi fréttamaður á RÚV, bendir á að fjölmiðlar hafi reynt að snerta á þessu en óttinn við afleiðingar fæli fólk frá því að rugga bátnum.
„Eðlilega. Þetta hefur viðgengist lengi og vegur kerfisbundið að grunnstoðunum. Það er því ekkert skrýtið að maður hristi hausinn þegar ráðamenn birtast manni rasandi hissa yfir vel þekktum tilburðum stærsta og valdamesta sjávarútvegsfyrirtækis landsins. Kannski er það bara svona sem kaupin gerast á eyrinni. En viljum við í alvörunni hafa þetta svona? Er ekki kominn tími til að uppræta þetta? Tryggja að almannahagsmunir trompi sérhagsmuni. Alltaf og án undantekninga.“
Þessir pólitísku valdataktar sterkra fyrirtækja eru engin nýlunda. Við þekkjum það vel í sjávarþorpunum hvernig allskonar brögðum er beitt til að hafa áhrif á það hvernig fólk kýs og hvernig frambjóðendur raðast á lista. Sumir fara fínt í þetta og beita mjúkum þrýstingi. 1/8
— Guðmundur Gunnarsson (@gummigunnars) May 26, 2021