Guðmundur: Við erum á slæmum stað þegar ungt fólk á sinn besta tíma í fangelsi

„Ég er búinn að fá mig fullsaddan af þessu rugli að ekki sé hlustað á þá sem þekkja til málaflokksins. Á sama tíma óska ég Kristínu og syni hennar góðs gengis,“ segir Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, félags fanga og áhugamanna um bætt fangelsismál og betrun.

Guðmundur Ingi skrifar á Facebook um mál Kristínar Helgadóttur en Fréttablaðið sagði sögu hennar í gærkvöldi. Kristín er móðir ungs fíkils sem glímir við geðræn veikindi. „Hann er ekki lengur húsum hæfur, horaður, van­­nærður og geð­veikur, á ráfi um stræti Reykja­víkur,“ sagði hún í færslu sem hún skrifaði á Facebook, færslu sem var einskonar ákall um hjálp.

Kristín sagði að það vantaði ekki viljann og úr­­ræðin en þar sem sonur hennar neitar að­­stoðinni, þar sem hann er ekki lengur raun­veru­­leika­­tengdur, er ekki eftir neinu að bíða en að hann valdi skaða með ein­hverju móti.

„Þar sem vel­­ferðar­ráðu­neytið Mamma er úr­­ræða­­laust með öllu, fjöl­­skyldurnar ekki lengur í stakk búnar til að styðja elsku­­legan son, bróður, mág og frænda, þá biðla ég til heil­brigðis-, vel­­ferðar- og fé­lags­­mála­ráðu­neytisins um ásjá og að­­stoð. Við getum ekki meira,“ sagði hún og nefndi að besti tími sonar hennar hafi líklegast verið þegar hann var í fangelsinu á Hólmsheiði, öruggur með húsaskjól, mat og fíkniefnaneysla í lágmarki. Fljótlega eftir að út var komið hafi hann farið í sama farið.

Guðmundur segir að ástandið sé orðið verulega slæmt þegar ungt fólk á sinn besta tíma í fangelsi.

„Væri fangelsiskerfið í lagi hér á landi hefði ungi maðurinn fengið endurhæfingu í fangelsi sem fylgt hefði út í samfélagið á nýjan leik. Það er eitthvað sem við í Afstöðu höfum barist fyrir í áraraðir. Stjórnvöld, sama hvaða flokkar sitja við kjötkatlana, hafa engan vilja sýnt til að breyta kerfinu enda pólitískt óvinsælt að nota fé úr ríkiskassanum í auma glæpamenn. Það er sorglegt.“

Guðmundur bendir svo á að það séu engin meðferðarúrræði í boði fyrir langt leidda vímuefnafíkla með geðræn vandamál. Því komi aðstandendur þeirra sífellt að luktum dyrum.

„Stjórnvöld segjast ráðþrota en hafna á sama tíma aðstoð frá öðrum löndum eða félagasamtökum sem hafa reynslu og þekkingu á þessum málum. Ráðherrar hafa reyndar sett fjármuni sem líta vel út í fjölmiðlum í von um auknar vinsældir og endurkosningu. Á meðan ráfa veikir og mögulega hættulegir einstaklingar um göturnar og fá hvergi hjálp. Ég er búinn að fá mig fullsaddann af þessu rugli að ekki sé hlustað á þá sem þekkja til málaflokksins. Á sama tíma óska ég Kristínu og syni hennar góðs gengis,“ segir hann.

Athyglisverð færsla sem Krístín Helgadóttir skrifaði á Facebook í gær og Fréttablaðið greindi frá. Þar greindi Kristín...

Posted by Guðmundur Ingi Þóroddsson on Fimmtudagur, 11. mars 2021