Guðmundur Auðunsson, oddviti Sósíalistaflokksins í Suðurkjördæmi, varar mjög við ráðagerð Sigurðar Inga Jóhannssonar samgönguráðherra vegna nýrrar Ölfusárbrúar.
Í aðsendri grein á vef Vísis rifjar Guðmundur upp svokallað PPP-kerfi (Private Finance Initiatives) sem komið var á fót í Bretlandi undir stjórn Johns Major, þáverandi forsætisráðherra. Segir Guðmundur að nú séu uppi hugmyndir um svipað kerfi hér á landi og lýsir hann miklum efasemdum um kosti þess.
„Hugmyndin er einföld. Einkaaðilar eru fengnir til að byggja innviði eins og sjúkrahús, skóla og vegi og síðan átti almenningur að borga fyrir þetta næstu 50 ár eða svo, annað hvort í gegnum skattakerfið eða með notkunargjöldum. Með þessu voru tvær flugur slegnar í einu höggi, „einkaframtakið“ sá um framkvæmdina og nauðsynleg uppbygging átti sér stað án þess að ríkið þyrfti að taka lán fyrir framkvæmdunum. Þetta þótti rosalega flott,“ segir hann og bætir við að fljótlega hafi komið í ljós vankantar á kerfinu.
„Samningarnir sem breska ríkið gerði við fjárfesta auðvaldsins færðu þeim háa og trygga leigu í langan tíma. Ekki bara sat almenningur uppi með reikninginn heldur borgaði „opinberu“ framkvæmdirnar í raun mörgum sinnum. Áhætta auðvaldsins var engin. Ef þeir fóru á hausinn þurfti ríkið að taka yfir verkefnið því skólana og sjúkrahúsin þurfti að byggja hvort sem var,“ segir hann.
Guðmundur segir að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og VG, sé staðráðin í að taka upp þessa gjaldþrota stefnu frá útlöndum.
„Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra er voðalega montinn yfir því að ætla að nota svindlið til að fjármagna nýju Ölfusárbrúna,“ segir hann og vísar í viðtal við Sigurð sem birtist á vef Vísis. Þar talaði hann sjálfur um PPP.
„Nú á að innheimta vegatolla á Ölfusárbrúna (lesist skatt á Sunnlendinga) til að fjármagna gróða einkaaðilanna. Hvort haldið þið að það sé ódýrara fyrir einkaaðila eða ríkið í gegnum vegagerðina að taka slík lán? Augljóslega ríkið, sem hefur aðgang að sérstaklega ódýrum lánskjörum í dag. Til viðbótar gera fjárfestingaraðilar kröfu um a.m.k. 20% arðsemiskröfu á fjárfestingu sína til að borga sjálfum sér arð. Einkaþoturnar kaupa sig ekki sjálfar. Það er því augljóst að verið er að svindla á almenningi í gegnum PPP fjármögnun. Miklu einfaldara og ódýrara að fjármagna slíkar framkvæmdir í gegnum skattakerfið,“ segir Guðmundur og hvetur fólk til að láta Sigurð Inga og vini hans „ekki svindla“ á Sunnlendingum.
„Grundvallarstefna Sósíalistaflokksins er að almannaþjónusta sé gjaldfrjáls til notenda. Hana á að fjármagna í gegnum skattakerfið sem við Sósíalistar viljum breyta. Við höfnum vegatollum og við frábiðjum okkur því að fjármagnseigendur séu að græða á fjárfestingum við uppbyggingu innviða. Það er miklu dýrara fyrir okkur. Ákvörðun okkar sem kjósenda í haust er því gífurlega mikilvæg. Kjósum því J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Alþingiskosningunum 25. september næstkomandi.“