Guðmundur tínir upp rusl daglega: Þetta er það óvenjulegasta sem hann hefur fundið

„Ætli ég hafi ekki verið að dunda við þetta í fimm­tán ár, sem sýnir hvað maður er að verða hund­gamall,“ segir Guð­mundur Daníelsson í samtali við Fréttablaðið.

Guðmundur sem er búsettur í Laugarnesinu í Reykjavík fer svo til daglega út að tína upp draslið í hverfinu. Í Fréttablaðinu kemur fram að Guðmundur sé fyrir löngu orðinn að samfélagshetju í hverfinu fyrir starf sitt.

„Fólk stoppar og þakkar mér fyrir. Það er nóg fyrir mig,“ segir Guð­mundur sem rifjar þó upp að eitt sinn hafi kona komið og gefið honum konfektkassa. „Svo þakk­lát kvaðst hún vera í minn garð.“

Eins og gefur að skilja hefur Guðmundur fundið ýmislegt í ferðum sínum.

„Já, blessaður vertu. Mest er þetta þó plast­drasl, en svo er ótta­lega mikið af sígarettu­stubbum og tóbakspúðum innan um sprautu­nálar og annan ó­þverra. En ég tíni þetta samt allt upp,“ segir hann.

Í viðtalinu í Fréttablaðinu kemur fram að eitt það ó­venju­legasta sem hann hefur fundið er ó­merkt um­slag með 300 dollurum sem hann fór með á lög­reglu­stöðina.

Hann grennslaðist fyrir um það seinna hvort eig­andi fjárins hefði fundist, en löggan sagði svo ekki vera.

„Hvað verður þá um peninginn? spurði ég, og komst að því að löggan ætlaði bara að halda honum eftir. Ég er því ekkert viss hvað ég geri næst þegar ég finn ó­merkt um­slag með fullt af seðlum,“ segir Guð­mundur en nánar má lesa um málið í Fréttablaðinu í dag og á vef Fréttablaðsins, Fréttablaðið.is.