Guð­mundur þakk­látur: „Hefði aldrei orðið að veru­leika ef það væri ekki fyrir ís­lensku þjóðina“

Sylwia Nowa­kowzka, eigin­kona Guð­mundar Felix Grétars­sonar, segir Guð­mund vera í góðu standi en hann fór í að­gerð í Lyon síðast­liðinn mið­viku­dag þar sem tveir hand­leggir voru græddir á hann. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2.

„Ég talaði við hann í fyrsta skipti í morgun eftir að­gerðina. Hann hefur það mjög, mjög gott og var ó­trú­lega bjart­sýnn og já­kvæður,“ sagði Sylwia í sam­tali við Vísi um málið og bætti við að Guð­mundur, sem hún kallar Felix, væri með skila­boð til ís­lensku þjóðarinnar.

„Felix segist vera ein­stak­lega þakk­látur öllum þeim stuðningi sem hann hefur fengið frá Ís­lendingum og segir að þetta hefði aldrei orðið að veru­leika ef það væri ekki fyrir ís­lensku þjóðina,“ sagði Sylwia.

Líkt og áður segir undir­gekkst Guð­mundur Felix að­gerð þar sem hand­leggir voru á­græddir á hann en hann missti báðar hendurnar í kjöl­far vinnu­slyss fyrir rúmum tveimur ára­tugum. Hann hefur síðast­liðin ár búið í Lyon og beðið eftir að­gerðinni.

Að sögn Sylwiu fór að­gerðin fram nánast sama dag og slysið varð, þann 12. janúar 1998, en að­gerðin tók um fimm­tán klukku­stundir og var þar um að ræða fyrstu handa­á­græðsluna í Lyon. Vel er nú fylgst með Guðmundi.