Guð­mundur spyr hvort þetta sé spilltasta stéttar­fé­lag landsins: „Sorglegt að sjá“

„Það er sorg­legt að sjá stéttar­fé­lagið mitt VM - Fé­lag vél­stjóra og málm­tækni­manna vera hugsan­lega orðið spilltasta stéttar­fé­lag landsins. Þau vinnu­brögð sem hafa verið stunduð í fé­laginu síðan nú­verandi for­maður tók við eru með ó­líkindum. Lög í­trekað brotin, sér­stak­lega hvað varðar með­ferð á fjár­munum fé­lagsins auk sam­einingar inn í annað fé­lag sem fé­lags­menn hafa ekki fengið kynningu á,“ svona hefst pistill Guð­mundar Ragnars­sonar, fyrr­verandi for­maður VM og nú­verandi fé­lags­manns á Vísi.

„For­maðurinn komið fram í fjöl­miðlum og sagt rétt­mæta gagn­rýni verða upp­spuna og lygi. Stjórnar­menn hafa þagað þunnu hljóði þó þeir viti að for­maður fé­lagsins hafi farið fram í fjöl­miðlum með ó­sannindi,“ skrifar Guð­mundur.

Hann segir að stjórnar­maður sagði sig úr stjórn og úr fé­laginu eftir síðasta stjórnar­kjör, þegar hann sá fram á það að til­raunir hans til að fá upp­lýsingar um með­ferð og sam­þykktir fyrir hundruðum milljóna króna úr sjóðum fé­lagsins yrði ekki svarað og hann fengi ekki stuðning annarra stjórnar­manna.

„Tíu fé­lags­menn þar á meðal fyrr­verandi stjórnar­menn til margra ára og með ára­tuga setu í stjórn VM og Vél­stjóra­fé­lagi Ís­lands sendu skrif­lega fyrir­spurn 3. nóvember 2022 til stjórnar fé­lagsins um meint lög­brot og með­ferð á fjár­munum fé­lagsins sem stjórnin ætlar ekki að svara skrif­lega sam­kvæmt síðasta svari hennar. Þessar fyrir­spurnir er hægt að nálgast á face­book síðu,: Guð­mundur Ragnars­son – VM.“

„Meðal þeirra sem skrifuðu undir fyrir­spurnirnar er ein­stak­lingur sem kom einna mest að þeirri vinnu að semja lög VM, þegar Vél­stjóra­fé­lag Ís­lands og Fé­lag járn­iðnaðar­manna sam­einuðust og til varð VM – Fé­lag vél­stjóra og málm­tækni­manna.

Hann veit hvað lögð var mikil vinna í það að tryggja að með­ferð fjár­muna fé­lagsins yrði varin fyrir mis­notkun og sóun. Einn af horn­steinum í starf­semi stéttar­fé­lags er með­ferð fjár­muna þess,“ skrifar Guð­mundur.

„Auk hans eru fé­lags­menn sem ekki hafa getað fengið skýringar á starf­semi fé­lagsins hjá stjórnar­mönnum þó þeir hafi í­trekað reynt það.“

Á hvaða stað erum við komin með stéttar­fé­lagið okkar?
„Það er sorg­legt að verða vitni að því hvað mörgum fé­lags­mönnum VM virðist vera sama þó lög fé­lagsins séu í­trekað brotin. Hafi for­maður VM farið vís­vitandi fram í fjöl­miðlum með rangt mál ber honum að segja af sér. Ó­heiðar­leika og lygar á ekki að líða í stéttar­fé­lagi eins og VM.“

„Stjórn VM ber að lýsa yfir van­trausti á nú­verandi for­mann og víkja honum fyrir það að virða ekki lög fé­lagsins sem hann hefur í­trekað brotið og unnið á bak við stjórn fé­lagsins.“

„Að stjórn VM ætli að svara fyrir­spurnunum á fé­lags­fundi eins og hún hefur boðað en ekki skrif­lega lýsir best á­standinu í fé­laginu og hver fer með rétt mál. Það á kannski að hafa hann eins og full­trúa­ráðs­fundinn í febrúar 2022 þar sem for­maður og stjórn stýrðu hverjir kæmu á fundinn til að fá fyrir­fram á­kveðna niður­stöðu,“ skrifar Guð­mundur.

Hvar erum við stödd sem sam­fé­lag?
„Hvernig ætlar stjórn VM að senda frá sér gagn­rýna á­lyktun um svindl, spillingu og ó­heiða­leg vinnu­brögð í sam­fé­laginu og hvernig getur stjórnin haldið á­fram að vinna í þessum felu­leik?“

„Ef stéttar­fé­lag á að vera þess megnugt að gagn­rýna ó­rétt­læti og ó­sæmi­legt fram­ferði í sam­fé­laginu, verður það sjálft að sýna for­dæmi með fyrir­myndar vinnu­brögðum, hlýðni við eigin lög og að allt sé öllum opið og að­gengi­legt og fyrir­spurnum svarað. Takist okkur ekki að halda vörð um þessi gildi erum við á villi­götum. Ef sið­leysi og virðingar­leysi fyrir okkar eigin lögum fær að þrífast innan verka­lýðs­hreyfingarinnar, erum við illa stödd sem sam­fé­lag.

Fé­lag eins og VM er eign fé­lags­manna og starfar fyrir þá en er ekki til fyrir for­mann til að kaupa sér vel­vild annars­staðar vegna eigin getu­leysis eða fyrir ó­til­tekna gæðinga sem hann er að þóknast.“

„Í stéttar­fé­lagi þarf að vera þróun í takt við þjóð­fé­lags­breytingar og breytta tíma. Breytingarnar þurfa hins vegar að vera unnar fé­lags­lega og eftir lögum fé­lagsins. Hug­mynd er búin til, hún mótuð og rædd á­fram. Þegar komið er upp­kast af hug­mynd, er komin grund­völlur til að vinna hana fé­lags­lega, hún rædd í stjórn, full­trúa­ráði og kynnt á fé­lags- eða aðal­fundi.“

Guð­mundur segir að í þessu ferli geta orðið veru­legar breytingar því fé­lags­mönnum þóknast þær ekki, þannig á stéttar­fé­lag að vinna. Það hefur ekki verið raunin í VM síðustu ár.

„Það var reynt að koma þessum lög­brotum á fram­færi í síðasta formanns- og stjórnar­kjöri hjá fé­laginu. Þegar allri gagn­rýni er svarað sem lygi og á­róðri og flestir stjórnar­menn þegja er erfitt um vik.

Það er alltaf verið að tala um lög­brot og sið­leysi í Eflingu, en að mínu viti hafa vinnu­brögðin í VM verið miklu verri þar sem brot á lögum fé­lagsins er öllum ljós sem það vilja sjá. Það hefur vakið furðu mína hvað fjöl­miðlar hafa haft lítinn á­huga á þessum vinnu­brögðum innan VM.“

„Þegar menn verða upp­vísir af lög­brotum og sið­leysi þá á aldrei að hætta að koma því á fram­færi fyrr en sann­leikurinn fær að koma fram og við­komandi látinn axla á­byrgð.

Það er sorg­legt að sjá það plan sem stéttar­fé­lagið okkar er komið á. Getu­laust til að vinna eins og al­vöru stéttar­fé­lag á að gera. Endur­heimtum fé­lagið okkar aftur sem öflugt og heiðar­legt stéttar­fé­lag sem getur starfað eðli­lega og látið í sér heyra eins og al­vöru stéttar­fé­lög eiga að gera,“ skrifar Guð­mundur að lokum.