Guðmundur Óskarsson, matreiðslumaður sem er búsettur í Danmörku, skoðar þessa dagana kaup á nýrri bifreið. Það væri vart í frásögur færandi nema fyrir þann mun sem er á lánskjörum á milli Íslands og Danmerkur.
„Nú erum við gamla settið hér í Danmörku að fara að kaupa okkur nýjan bíl. Kannski er þetta síðasti bíllinn sem við kaupum því við erum gjörn á að eiga bíla okkar lengi,“ segir Guðmundur í innleggi sem hann birti í Facebook-hópi Sósíalistaflokks Íslands og hefur vakið nokkra athygli.
Guðmundur segir að allskonar möguleikar séu í boði varðandi bílakaup í Danmörku eins og annars staðar. Ákveðið var að kaupa bifreið af gerðinni Skoda Fabia en ásett verð var 164.815 danskar krónur, eða 3,3 milljónir króna.
Guðmundur nefnir að hann hafi möguleika á að borga bílinn á borðið eða þá dreifa greiðslum, til dæmis með því að borga rúmlega 30 þúsund danskar krónur út og svo restina á átta ára láni. Þá kemur að muninum á lánskjörum milli landa.
Lánið sem Guðmundi stendur til boða í Danmörku ber 0,99 prósenta fasta vexti. „Eftir mikla útreikninga og umhugsun ákváðum við að það sé ódýrara að taka fullt lán því verðbólgan er aðeins hærri en vextir af láninu og geyma peningana í banka.“
Guðmundur kveðst hafa skoðað sambærileg bílalán á Íslandi til að haga hvað bankarnir þar „eru að pína fólkið mikið“ eins og hann orðar það.
„Aríon banki: 5,25% vextir til sjö ára. Lántökugjald 52000 sem ekki þekkist í Danmörku og árleg hlutfallstala 6,57% (sem ég veit ekki hvað er). Niðurstaða á samanburði: Oh, hvað fjármálastofnunum á Íslandi finnst gaman að skila miklum hagnaði og pína fólkið endalaust í skjóli krónunnar. Ekki skrítið að auðmenn vilja eignast banka.“
Færsla Guðmundar hefur sem fyrr segir vakið nokkra athygli og taka margir undir það sem fram kemur í henni. Einn stingur upp á því að Íslendingar taki upp evru, þar með myndu erlendir bankar sjá kosti við að taka Íslendinga í viðskipti. Þá bendir einn á dæmi frá Noregi sem þekkist trúlega ekki á Íslandi. Hann segir:
„Kunningi minn í Noregi var að borga inn á lánið af húsinu sínu til að vera skuldlaus á efri árum. Svo var hann boðaður í bankann. Þar sem hann átti 78% í húsinu þá var áhætta bankans minni og vextir lækkaðir. Hefur einhver séð svoleiðis hér?“