Guð­mundur skýtur fast á Þóri Sæm: „Það eru skóflur víða sem þarf að beita“

Guð­mundur Rúnar Jóns­son gefur lítið fyrir færslu Þóris Sæm leikara en honum var sagt upp störfum hjá leik­húsinu árið 2017 fyrir að hafa á­reitt, sent kyn­færa­myndir af sér og átt í ó­við­eig­andi sam­bandi við stúlkur á ung­lings­aldri.

Í minningunni sem hann deilir er hann að ráð­stafa tveimur miðum á leik­sýninguna Álfa­höllina sem var frum­sýnd í apríl 2017. Í færslunni segir Þórir:

„Mér var sagt upp í störfum frá leik­húsinu í fyrstu viku við æfingar á þessu leik­riti. 4 vikum fyrir frum­sýningu. Það vissi það enginn. Kollegar mínir vissu ekki hvað ég var að ganga í gegnum í þessu ferli,“ skrifar Þórir.

Guð­mundur Rúnar skrifar í at­huga­semd undir frétt DV um málið og segir Þóri að girða sig í brók og hætta þessu væli ef svo má að orði komast.

„Það eru skóflur víða sem þarf að beita, pulsur sem þarf að selja, ísar í brauð­formi sem þarf að af­greiða. Vel­kominn í ver­öld ó­fag­lærðra. Hættu svo að senda typpa­myndir á smá­börn,“ skrifar Guð­mundur.