Guðmundur segist fá fyrirspurnir frá fólki sem vill smitast af honum

Guðmundur Jörundsson fatahönnuður segir ljóst að hugarfar fólks gagnvart Covid-19 hafi svo sannarlega breyst síðustu vikurnar. Þúsundir hafa smitast af Covid-19 en þrátt fyrir það hefur minna borið á alvarlegum veikindum en oft áður, ekki síst vegna þátttöku fólks í bólusetningum.

Guðmundur sagði frá því á Twitter-síðu sinni í gær að hann hefði greinst með Covid-19 á öðrum degi ársins.

„Hugarfar fólks gagnvart Covid hefur breyst gríðarlega s.l. 2 vikur. Ég greindist í dag með Covid og hef nú fengið fjölda fyrirspurna frá fólki hvort það megi koma og fá hjá mér smá smit til að ljúka þessu af,“ segir Guðmundur.

Ekki liggur fyrir hvort mikil alvara sé að baki þessum fyrirspurnum frá fólki en ljóst má vera að margir eiga eftir að smitast næstu vikurnar miðað við fjölda daglegra smita að undanförnu.