Guðmundur segir Davíð hrútskýrandi hellisbúa: „Ef skandallinn fær að standa þá er það endanlegt“

Guðmundur Gunnarsson, frambjóðandi Viðreisnar í síðustu Alþingiskosningum, hafnar því að vera í sérhagsmunapoti fyrir að vilja skjóta endurtalningunni í Norðvesturkjördæmi til Mannréttindadómstóls Evrópu. Staksteinar Morgunblaðsins í dag, sem mögulega eru skrifaðir af Davíð Oddssyni ritstjóra, segja að Guðmundur sé einungis að gera svona mikið mál úr endurtalningunni þar sem hann hafi dottið af þingi þegar atkvæðin voru talin aftur. Þá sé það viðeigandi fyrir hann að fara með málið til MDE þar sem hann sé Evrópusinni.

„Menn sem hafa búið í sérhagsmunahelli allt sitt líf skilja auðvitað ekki tilganginn með því að gera eitthvað án þess að hagnast á því persónulega.

Þeir skilja ekki að einhverjum geti dottið í hug að kalla eftir áliti á því hvort klaufalega sniðinn stakkur lýðræðis á Íslandi standist skoðun. Fyrir okkur öll.

Það er ofar þeirra skilningi.

Að skjóta málinu til MDE snýst ekki um að snúa við ákvörðun Alþingis, fari svo að hneykslið verði samþykkt,“ segir Guðmundur á Facebook

„Alþingi mun eiga síðasta orðið og þar við situr. Ef skandallinn fær að standa þá er það endanlegt. Það þarf enginn að hrútskýra það neitt frekar. Það kunna fleiri að lesa sér til gagns en þeir sem ólust upp við olíulampa.“

Hann bætir við:

„Það stendur einfaldlega til að kæra svo okkur lánist sem fyrst að lagfæra augljósar misfellur gallaðs kerfis. Til að tryggja að svona eftirmálar sprellikosninga heyri sögunni til. Upp á framhaldið. Til að hjálpa okkur að rétta kúrsinn og stilla kompásinn.“

Hann segir Staksteina óvæntan meðbyr:

„Það er samt mjög hollt að fá innsýnn í hugarheim höfundar. Ákveðin stúdía. Færir okkur endanlega staðfestingu á því að við verðum að ýta þessu fleyi úr vör sem fyrst. Armurinn, sem skík rödd tilheyrir, mun aldrei aðhafast neitt án utanaðkomandi yfirhalningar. Það er ekki einu sinni víst að það dugi til því það er ekki eins og þeir hafi lært eitthvað að fyrri yfirhalningum úr sömu átt.“

Hann bætir svo við:

„Að því sögðu vona ég að gusturinn haldi áfram úr þessari átt. Þetta er akkúrat vindurnn sem þarf í seglin.“