Guð­mundur segir að svona eigi leigj­endur að svara Ölmu – þekkt úr­ræði þegar verið að okra á fólki

For­­maður Leigj­enda­sam­takanna segir að fólk sem gert er að taka á sig miklar húsa­­leigu­hækkanir hafi þá leið að greiða ekki sam­­kvæmt hækkaðri leigu heldur leggi gömlu upp­­hæðina á bið­­reikning.

Guð­­mundur Hrafn Arn­gríms­­son, for­­maður Leigj­enda­sam­takanna, hvetur leigj­endur hjá Ölmu til að í­huga að hætta að greiða húsa­­leigu til fé­lagsins. Þá hvetur hann al­­menning til að snið­­ganga allar vörur frá Langa­­sjó, fé­laginu sem á Ölmu. Þetta kemur fram á vefFrétta­blaðsins.

„Leigj­endur hafa ýmis ráð og það er þekkt úr­­ræði að hætta að borga leigu ef reynt er að okra á þeim,“ segir Guð­­mundur Hrafn.

„Á Spáni er al­­gengt ef mikið ber á milli eftir hækkanir að leigj­endur greiði leigu án hækkunar inn á bið­­reikning lög­­fræðinga í stað þess að hún renni beint til leigu­sala. Þetta gæti verið góð leið hér,“ segir Guð­­mundur Hrafn sem telur vel koma til greina að leigj­endur hjá Ölmu beiti slíkum að­­gerðum.

Vafa­­mál er hvort skil­­málar hjá hagnaðar­drifnum leigu­fé­lögum eru virtir. Ó­­­ljóst virðist við hvað vísi­­tölu­hækkanir eiga að miðast eftir því hvort um lang­­tíma- eða skamm­­tíma­­leigu er að ræða.

Fyrr í vikunni greindi Frétta­blaðið frá máli Brynju Bjarna­dóttur, 65 ára ein­­stæðrar konu og sjúk­lings, sem fékk heldur dapur­­lega jóla­­­gjöf frá Ölmu í­búða­­fé­lagi í tölvu­­pósti í lok síðasta mánaðar, þegar henni var til­­kynnt um 75 þúsund króna hækkun á leigu­verði á íbúð hennar við Hverfis­­götu.

„Ég var nú búin að sætta mig vita að geta ekki haldið jól vegna peninga­­leysis en ég bjóst ekki við því að ég færi á götuna líka,“ sagði Brynja í sam­tali við Frétta­blaðið.

Sam­­kvæmt nú­verandi samningi hennar þá greiðir Brynja rúm­­lega 250 þúsund krónur á mánuði í leigu. Alma býður henni hins vegar endur­­nýjun á leigu­­samningi með 325 þúsund króna grunn­­leigu­verði.

Brynja er ör­yrki og fær 325 þúsund krónur í fram­­færslu í hverjum mánuði og segir hún það rétt duga fyrir húsa­­leigunni. Að­­spurð um skýringarnar sem leigu­­fé­lagið gefi vegna hækkunarinnar segir Brynja þær engar. „Þetta er bara peninga­græðgi.“