„Margir hafa tjáð sig núna í kjölfarið um að ekkert sé að marka lengur þríeykið og eins gott að hætta þessu bara. Ég er ekki sammála,“ segir Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í færslu á Facebook-síðu sinni.
Þar tjáir hann sig um mál málanna þessa dagana, umdeilda ferð Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur með hópi vinkvenna og viðbrögðin í kjölfarið.
„Ríkisstjórnin fékk lof fyrir að halda sig álengdar og til hlés í fyrri lotu covid-faraldursins. Nú virðist ríkisstjórnin aðallega þvælast fyrir þríeykinu og grefur undan trúverðugleika þess,“ segir Guðmundur Andri og bætir við að málið hafi valdið þríeykinu vissum erfiðleikum. Ríkisstjórnin eigi ekki að gera þeim lífið meira leitt en það er.
„En samt sem áður: Margir hafa tjáð sig núna í kjölfarið um að ekkert sé að marka lengur þríeykið og eins gott að hætta þessu bara. Ég er ekki sammála. Þau hafa lagt áherslu á að við berum öll ábyrgð á okkur sjálfum - líka ráðherrar - og þau hafa höfðað til skynsemi okkar frekar en hlýðniþarfar.“
Guðmundur Andri bendir á að tveggja metra reglan séu tilmæli til okkar – einskonar áminning um að fara með gát – en ekki lagaboð.
„Við vitum öll hvernig þetta smitast, og við þurfum ekkert að fara í mótþróakast gagnvart Þórólfi þó að við séum orðin leið á þessu öllu, og sérstaklega ríkisstjórninni. Og áfram ætla ég að taka mark á þríeykinu og reyna að hegða mér í samræmi við ábendingar þeirra og tilmæli, jafnvel þótt ekki virðist allir gera það. Áfram tek ég mark á því að við séum öll almannavarnir.“