Guð­mundur og Guðni jafnir? Viktor segir fólki að taka niður­stöðurnar ekki of al­var­lega

„Niður­stöður vef­kannana Út­varps Sögu, Reykja­vík Síð­degis og DV.is segja ekkert um skoðanir þeirra sem ekki tóku þátt, það er í besta falli sam­kvæmis­leikur að horfa á % þar en samt eigin­lega ekki sniðugur leikur,“ segir Viktor Orri Val­garðs­son, stjórn­mála­fræðingur og fyrr­verandi vara­þing­maður.

Viktor gerir þarna skoðana­kannanir síðustu daga að um­tals­efni sem eiga að sýna stöðu fram­bjóð­enda í for­seta­kosningunum. Guðni Th. Jóhannes­son og Guð­mundur Frank­lín Jóns­son verða tveir í fram­boði til for­seta.

Í niður­stöðum könnunar sem DV gerði á dögunum reyndist Guðni vera með 49,09% fylgi en Guð­mundur 44,2%. Í frétt DV um niður­stöðurnar segir að rúm­lega 27 þúsund IP-tölur hafi tekið þátt. Fékk Guðni 13.356 at­kvæði en Guð­mundur 12.010 at­kvæði.

„Það er pínu at­hyglis­vert að Guð­mundur Frank­lín hafi fengið 12.010 at­kvæði í könnun DV.is, en jafn­vel þó við gefum okkur að enginn hafi kosið oftar en einu sinni þar þá sam­svarar það ca. 7% at­kvæða í síðustu for­seta­kosningum. Ég hef hingað til gert ráð fyrir að þakið hans sé í kringum 10-13% svo þetta breytir engu um það,“ segir Viktor Orri.

Hann gerir niður­stöður könnunar MMR á fylgi flokkanna sem birtust í fyrradag einnig að um­tals­efni en þar vakti sterk staða Sjálf­stæðis­flokksins, í saman­burði við aðra flokka að minnsta kosti, og mikið fylgi Pírata at­hygli. Píratar eru næst­stærsti flokkur landsins sam­kvæmt könnuninni.

„Ein könnun MMR segir líka voða­lega lítið út af fyrir sig, þó Pírötum finnist gaman að sjá flokkinn mælast til­tölu­lega hátt þar. Fylgi flokkanna hefur verið að sveiflast um þetta bil allt kjör­tíma­bilið, þ.á.m. Pírata frá ca. 8-14%, svo það þyrfti fleiri svipaðar kannanir til að ég færi að líta svo á að eitt­hvað hafi breyst þar.“