Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Ísafirði, er ósáttur við að Orkan skuli auglýsa ódýrt eldsneyti á bensínstöð sinni á Ísafirði – og það í þokkabót á ensku.
„Það er tilkomumikið nýja skiltið á Ísafirði sem auglýsir skítódýrt eldsneyti á útlensku. Aðeins 227,5 krónur hver lítri takk fyrir. Svo er líka hægt að keyra 15 kílómetra til Bolungarvíkur og fá sama sopa á 232,5 kr. Ótrúlega cheap díll til handa Vestfirðingum,“ segir Guðmundur.
Hann bendir á að sama vara frá sama fyrirtæki fáist reyndar á 193,3 krónur á Dalvegi í Kópavogi.
„Ekki nema 40 krónum ódýrari. Sá díll er reyndar á íslensku. Hver tankur einhverjum þúsundköllum ódýrari. Samt ekki cheap.“
Guðmundur veltir fyrir sér hvers vegna hægt er að kaupa matvöru á sama bílaplani á Ísafirði á sama verði og í Reykjavík.
„En það gilda trúlega einhver allt önnur lögmál um flutningskostnað á mjólk en bensíni. Þekki það ekki. Endemis hugulsemi alltaf hreint hjá þessu olíufólki. Megi þeim ganga sem best að standa af sér orkuskiptin.“
Það er tilkomumikið nýja skiltið á Ísafirði sem auglýsir skítódýrt eldsneyti á útlensku. Aðeins 227,5 krónur hver lítri...
Posted by Gudmundur Gunnarsson on Þriðjudagur, 2. febrúar 2021