Guð­mundur: Katrín hrifsar til sín 73.000 og fullan jóla­bónus – eldri borgarar fá 9 þúsund

„Ríkis­stjórninni finnst nóg að henda 9.244 kr. í eldri borgara en Katrínu finnst eðli­legra að hrifsa til sín 73.000 auk fulls jóla­bónus!! Sið­blindan á fullu stími.“

Þetta segir Guð­mundur Gunnars­son, fyrr­verandi for­maður Raf­iðnaðar­sam­bands Ís­lands. Guð­mundur deilir frétt Vísis frá því í gær þar sem greint var frá launa­hækkunum þing­manna og ráð­herra um ára­mótin. Launin hækka um 3,4 prósent sem þýðir hækkun upp á 40.000 krónur á grunn­þing­farar­kaup. Laun Katrínar hækka um 73.000 krónur en aðrir ráð­herrar hækka um 66.000 krónur.

Guð­mundur skrifar pistil af þessu til­efni á Face­book-síðu sína þar sem hann ræðir þá gjá sem komin er á milli þróunar elli­líf­eyris og launa. Þá segir hann að ríkis­stjórnin hafi valið þá leið að veitast að eldri borgurum og bregða fyrir sig venju­bundnum reiknikúnstum.

„Ríkis­stjórnin rök­styður mál sitt með full­yrðingu um að frá janúar 2017 til júlí í ár hafi neyslu­vísi­talan hækkað um 10,6% en bætur al­manna­trygginga um 20,5%. Þessi for­senda er röng, enn eina ferðina bregða þing­menn fyrir fals­út­reikningum. Ó­skertur elli­líf­eyrir hefur á þessu tíma­bili nefni­lega hækkað um 12,3%, ekki 20.5%,“ segir Guð­mundur sem birtir reiknings­dæmi máli sínu til stuðnings.

„Elli­líf­eyririnn var 228.734.- kr. árið 2017. Ef við hækkum þá tölu um 20,5%, eins og ríkis­stjórnin full­yrðir, þá væri elli­líf­eyririnn í dag 275.600.- kr. En elli­líf­eyririnn er hins vegar í dag einungis 256.789 kr. Ef réttur elli­líf­eyrir væri hækkaður um 3,6% eins reiknað er með í fjár­laga­frum­varpinu þá ætti hann að hækka í 285.500.- kr. Ríkis­stjórnin hafnar sátta­til­lögu eldri borgara um að líf­eyrir hækki jafn­mikið og önnur laun eða um 15.750.- og elli­líf­eyrinn yrði þá 272.539.- kr. Ríkis­stjórnin ætlar hins vegar að hækka elli­líf­eyri einungis um 9.244.- kr. þeas í 266.033.- kr. Það vantar þannig 19.467.- kr. upp á að elli­líf­eyririnn væri eins hann ætti að vera.“

Guð­mundur lítur svo á að um sé að ræða svik við eldri borgara með ó­merki­legum reiknikúnstum. Ekki sé nóg að leggja allt að 80% jaðar­skatta á þann sparnað sem launa­menn eiga í líf­eyris­sjóðum. Full­yrðir hann að gjáin milli þróunar elli­líf­eyris og launa á vinnu­markaði hafi farið vaxandi síðast­liðin fjögur ár.

„Ríkis­stjórnin stefnir á að skilja elli­líf­eyris­þega eina eftir og hafnar því að ná sátt við þennan sem á engan máls­vara, hefur ekki samnings­rétt og er því al­gjör­lega háður á­kvörðun stjórn­valda. Það verður á­huga­vert á heyra af til­lögum um launa­hækkanir al­þingis­manna sem eiga að koma til fram­kvæmda um n.k. ára­mót. Ríkis­stjórninni finnst nóg að henda 9.244 kr. í eldri borgara en Katrín finnst eðli­legra að hrifsa til sín 73.000 auk fulls jóla­bónus!! Sið­blindan á fullu stími.“

Gunnar Smári Egils­son, stofnandi Sósíal­ista­flokksins, leggur orð í belg um málið á Face­book-síðu flokksins.

„Munið þið eftir þessum hjart­næma kynningar­fundi, at­vinnu­leysis­bætur hækkaðar um 17.920 kr. um ára­mótin með lúðra­þyt og söng? Ráð­herrarnir sögðust hafa teygt sig upp í topp, meira mætti ekki hækka at­vinnu­leysis­bætur án þess að koll­varpa ríkis­sjóði. Í dag var sagt frá því að þeirra eigin laun myndu hækka um 73.072 kr. um ára­mótin, meira en fjórum sinnum meira en at­vinnu­leysis­bætur. Þetta segir allt sem segja þarf um þessa ríkis­stjórn hinna best settu.“