Guð­­mundur Ingi veiktist illa í janúar: Ein­­kennin alveg eins og Co­vid-19 - „Hefur þetta verið kannað?“

„Ég er eigin­lega orðinn sann­færður um að um miðjan janúar sl. hafi ég rekist illi­lega á ein­eggja tví­bura­systur Co­vid-19-veirunnar. Hvers vegna er ég sann­færður um það? Vegna þess að það tikkar í öll boxin.“

Þetta sagði Guð­mundur Ingi Kristins­son, þing­maður Flokks fólksins, í ó­undir­búnum fyrir­spurna­tíma á Al­þingi í morgun. Guð­mundur beindi þá fyrir­spurn til Svan­dísar Svavars­dóttur heil­brigðis­ráð­herra um það hvort það gæti verið að ein­hver hluti þjóðarinnar væri kominn með ó­næmi fyrir Co­vid-19 veirunni.


Aldrei hóstað eins mikið

Guð­mundur út­skýrði veikindi sín í janúar nokkuð ná­kvæm­lega:

„Ég hef aldrei hóstað eins mikið á ævinni á hálfum mánuði eins og þá. Ég hef aldrei orðið fyrir annarri eins slím­myndun í lungum og þá. Bragð­skynið hvarf, matar­lystin hvarf, ég missti 3 kíló. Ég mæli ekki með þeirri megrunar­að­ferð, þetta var ömur­legt, kvið­verkir, bein­verkir og það furðu­legasta var að lengi á eftir mátti ég ekki hlæja án þess að fá hósta.“

Guð­mundur Ingi segist líka geta stað­fest að tveir aðrir fjöl­skyldu­með­limir hafi fengið þessa pest í desember og glíma enn við eftir­köstin. „Ég spyr: Er það kannski skýringin á því hvers vegna þessi veira fer svona mis­jafn­lega í þjóðina? Er ein­hver kominn með ó­næmi?“

Guð­mundur Ingi segist aldrei hafa fengið aðra eins flensu um ævina. Hann hafi at­hugað og spurt fólk hvort það hefði fengið við­komandi flensu.

„Ég spurði fullt af fólki og allir lýstu þessu eins, en það merki­lega við það þegar maður spyr þetta sama fólk hvort það hafi verið innan um og/eða fengið Co­vid-19-veiruna hefur það ekki fengið hana. Ég spyr hæstv. heil­brigðis­ráð­herra: Hefur þetta verið kannað? Er það ekki svo­lítið furðu­legt að desember og janúar skuli vera flensa í gangi sem er svona gjör­sam­lega alveg eins og Co­vid-19, tikkar í öll box, en samt sagt: Nei, þetta var ekki hún? Þá hlýtur þetta að hafa verið ein­eggja tví­buri og ég spyr bara: Hefur þetta verið kannað eða verður þetta kannað?“

Áhugavert að kanna

Svan­dís Svavars­dóttir heil­brigðis­ráð­herra sagðist ekki getað svarað spurningum Guð­mundar Inga beint, af þeirri ein­földu á­stæðu að hún er ekki heil­brigðis­starfs­maður eða læknir.

„En ég vil hins vegar segja að það kann að vera afar á­huga­vert fyrir ís­lenskt sam­fé­lag, og um það hefur raunar verið rætt, að kanna ó­næmi í sam­fé­laginu. Á ein­hverjum tíma­punkti kann það að vera sér­stak­lega á­huga­vert að kanna hvort fólk hafi fengið Co­vid-19 á fyrri stigum og jafn­vel með mjög litlum ein­kennum en beri í sér ó­næmi. Það er eitt af því sem hefur verið rætt að kunni að vera skyn­sam­legt að gera.

Guð­mundur Ingi steig aftur í pontu og sagði hann nýjustu upp­lýsingar gefa til kynna að fyrsta smitið hafi komið upp í Kína um miðjan nóvember á síðasta ári.

„Ég veit um ein­stak­linga sem voru ein­mitt í borginni í Kína og komu frá Kína og voru hér á landi í desember. Ég veit um ein­stak­ling sem veiktist mjög illa á þeim tíma. Ég veit að það er hægt að komast að þessu með því að taka blóð­prufu sem er örugg­lega dýr fram­kvæmd en ég hugsa með mér að það væri eigin­lega frá­bært ef þetta væri þannig komið að stór hópur þjóðarinnar væri orðinn ó­næmur,“ sagði Guð­mundur Ingi og í­trekaði að öll ein­kenni hefðu verið alveg eins. „Ég hef ekki fundið eitt at­riði sem er öðru­vísi af því sem ég fékk og lýsingunni á þessari veiru.“