Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu – félags fanga á Íslandi, segir að yfirvöld megi hafa skömm af því að hafa ekki komið Gísla Finnssyni og Sigurði Kristinssyni til bjargar en þeir lágu báðir á sjúkrahúsi á Spáni vikum saman.
Sigurður fékk alvarlegt heilablóðfall á Spáni og kom til landsins í gær með sjúkraflugi en fjölskyldur og vinir þeirra beggja hafa safnað fyrir sjúkraflugi.
„Mér líður alveg ólýsanlega vel og þakklát, ég er ekki alveg búin að ná þessu. Hef varla styrkinn í að standa hérna en þetta er hryllilega indælt,“ sagði Rúna Kristín Sigurðardóttir, dóttir Sigurðar, í samtali við RÚV í gær.
„Megi yfirvöld hafa skömm fyrir að hafa ekki komið til bjargar í þessum tveim málum hjá Gísla Finns og Sigurði. Það hefði ekki verið nokkurt mál ef aðeins er lesið "rétt" úr lögunum en ekki "þröngt" eins og l stjórnsýslulögmenn virðist alltaf gera,“ skrifar Guðmundur.
„Ég verð ansi svekktur ef Heilbrigðisráðherra komi ekki með lagabreytingu og setji skýr fyrirmæli um sjúkraflug fyrir íslenska borgara erlendis frá, og bæti þessu við lögbundin verkefni Sjúkratrygginga Íslands í 33. gr. laga um sjúkratryggingar nr. 112/2008,“ segir hann enn fremur.