Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu félags fanga, gagnrýnir nafna sinn Guðmund Inga Guðbrandsson, félags og vinnumarkaðsráðherra, harðlega í pistli sem birtist á vef Fréttablaðsins í dag. Hann er ósáttur með að ráðherrann hafi veitt Þjóðkirkjunni tíu milljón króna styrk til að bjóða aðstandendum fanga upp á þjónustu, stuðning og ráðgjöf.
Hann nefnir tvær ástæður fyrir þessu:
„Fulltrúar Afstöðu áttu fund með Guðmundi Inga Guðbrandssyni fyrir fáeinum vikum þar sem sóst var eftir fjárstuðningi og verkefni Afstöðu skilmerkilega útlistuð fyrir honum, sérstaklega þegar kemur að aðstandendum fanga. Ráðherra var jákvæður á fundinum en ekkert gerðist í framhaldinu og ekkert var nefnt um milljóna styrki til trúfélaga.
Stofnanir og sveitarfélög hafa á undanförnum árum dregið úr því að blanda saman trúmálum við fagleg störf þannig að það verður að taka undir gagnrýni bæði Vantrúar og Siðmenntar. Það á einfaldlega ekki að blanda saman trúmálum og sérfræðiþjónustu.“
Guðmundur bendir á að félag hans sé ekki á fjárlögum, en hafi í mörg ár reynt að fá styrki frá ríki og sveitarfélögum. Hann segir: „Enda að sinna þjónustu sem ætti að vera á herðum þeirra.“
Þá er hann ósáttur með að í tilkynningu ráðherra um málið segir að eigi Afstaða eigi í framhaldi af styrkveitingunni að hafa milligöngu um að benda á Þjóðkirkjunna.
„Samkvæmt því sem kemur fram í tilkynningunni frá Guðmundi Inga Guðbrandssyni, félagsmálaráðherra og varaformanni Vinstri grænna, á Afstaða aftur á móti í framhaldi af styrkveitingunni til Þjóðkirkjunnar að hafa milligöngu um að benda þangað þegar kemur að þjónustu við fanga og aðstandendur þeirra.“
Hægt er að lesa pistill Guðmundar Iinga í heild sinni hér.